Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1969, Side 18

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1969, Side 18
16 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSOKNIR knébeygð títa. Fræþyngdin er 0,8—1,0 g. Raðaræktun hefur reynzt betur en dreifsáð eins og tún. Útsæðismagn 10—12 kg á ha, en við dreifsáningu allt að helmingi meira. Áburður eins og fyrir aðra grasfrærækt að undanskildu því, að N verður að takmarka meir við háliðagras vegna þess, hve því er gjarnt á að leggjast í legu. Ott ekki meir en 40—50 kg N á ha, ef um leygða mýri er að ræða. Oft má taka fræ af sömu sáningu (fræakri) 6—8 ár, en mest er frætekjan fyrstu 3—4 árin. Fræ það, sem notað hefur verið til fræræktar, var frá Finnlandi og er tals- vert misþroska. Síðari ár hefur háliðagras fengizt vest- an hafs, sem hefur reynzt nokkuð jafn- þroska og því betra til fræræktar. Amerískt fræ hefur reynzt þolgott og ekki lakara hvað það snertir en finnskt háliðagrasfræ. Yfirlit um gæði háliðagrasfræs er í töflu IX. 21% af sýnunum hefur gróð illa, en 79% gróið vel og ágætlega. Háliðagrasið hefur sýnt jöfnustu og heztu spírun af þeim gras- tegundum, sem til grómagnstilrauna hafa verið tekin. Annars er hér áramunur eins og með annað fræ, og svo hefur það áhrif, hve fljótt þurrkun hefur tekizt. Vallarfoxgras (Pleitm pratense) Athuguð hefur verið frærækt af vallar- foxgrasi, en þessi tegund hefur verið mikið notuð í fræhlöndur, síðan sáðtúnarækt hófst hér á land. Þetta er eitthvert ágætasta fóð- urgras, sem ræktað er, og mikið notað við túnrækt víða um heim. Frærækt af þessu grasi er því miður ekki auðveld hér á landi. Tilraunir hafa verið gerðar á Sámsstöðum og Kornvöllum síðan 1955 aðallega, en áður ræktað í smáreitum, og ná grómagnstilraunirnar yfir fræ tekið úr tilraunareitum frá 1925 til 1941. Árið 1954 var Egmo thimote ræktað á 2—3 ha á Sámsstöðum og Kornvöllum og fræ upp- skorið í fimm ár. Aldrei náðist svo mikil frætekja, að ræktunin svaraði kostnaði, um 100 kg hreinsað fræ af ha, og er það fjór- um sinnum of lítið. Líklega er of svalt fyrir góða þroskun þess í sumrum, sem eru fvrir neðan meðallag. Bezta fræið hefur komið frá hitasumrinu 1939 og frá 1958 og 1960. Það er þó engan veginn fullsannað, nema hægt verði að rækta fræ af þessari tegund með raðaræktun og haustáburði, og um það þyrfti að gera tilraunir. Vallarfoxgras það, sem þessar rannsóknir ná til, eru frá landi, þar sem ekki hefur verið ræktað í röðum, heldur tekið úr rækt- un, sem hefur verið dreifsáð. Bezti jarðveg- ur fyrir frærækt þessarar tegundar er góð leirmóajörð, og er vel hægt að sá fræinu í snemmsáinn byggakur og hafa bil milli raða 50 cm. Útsæðismagn um 5 kg á ha, en við dreifsáningu um 10 kg. Vallarfoxgrasið þroskast venjulega ekki fyrr en í september, fyrst eða síðast í þeim mánuði eftir árferði. Frærækt af því er ekki fullkönnuð og aldrei talin líkleg til arð- gæfs árangurs. Þó er ekki að mínu áliti full- sannað, hvort framleiðsla fræs þessarar teg- undar nái hér fótfestu. Úr því verða vænt- anlegar tilraunir að leysa. Eitt er þó víst, að oftast getur þessi tegund (einkum Eng- mo) gefið eins stórt fræ og erlendis, en fræ- setningin er ekki nógu mikil í öxunum, og stafar það ef til vill af því, að frjóvgun til fræmyndunar nær ekki nægilega vel til allra axberandi stráa. Veldur hér vafalaust, að fræ það, sem tekið hefur verið til rann- sóknar, hefur verið frá of litlum fræökrum og vegna smæðar þeirra ekki náð fullri fræ- setningu, þ. e. ekki nægileg og alger frjóvg- un. Tegundin er aðfræv og með vindfrjóvg- un. Áhættulaust er að sá vallarfoxgrasi til fræræktar, því að ef tíð er ekki þess megn- ug að leiða það til fulls fræþroska, gefur grasið mikið fóður, 60—70 liestburði af ha við dreifsáningu og þriðjungi minna hey við raðaræktun. En eins og fyrr er fram
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.