Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1969, Side 45

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1969, Side 45
Hólfin voru yfirleitt hvíld frá beit í 10 daga og þá beitt á þau aftur, þannig að 12 dagar liðu oftast frá því, að kýrnar komu á ákveðið hólf, unz þær komu á sarna hólf aftur. Eins og mynd 2 sýnir, gengu kýrnar í flokkunum AI og AII saman í hólfi og kýrnar í flokkunum B I og B II saman í næsta hólfi við, sjá myndir 1 og 2. Mynd 2 sýnir enn fremur, að flokkunum AI og A II var beitt á 12 hólf, en flokkunum BI og B II á hin 12 hólfin. Er rétt að vekja athygli á því, að með þessu fyrirkomulagi höfðu kýrnar í flokkunum B I og B II í tilraun nr. 1 aðgang að jafnmiklu beitar- grasi á nóttunni og flokkarnir A I og A II höfðu til beitar allan sólarhringinn. Kýrnar í flokkunum BI og BII í til- raun nr. 1 gengu utan túns á daginn, en á túni á nóttunni, eins og áður er sagt. í úthaganum gengu þær með 66 öðrum kúm Laugardælabúsins. Úthaginn, sem kýrnar höfðu til umráða, er um 200 ha að stærð. Er um helmingur hans mólendi (heiði) og heilgrös rikjandi þar, en hinn hlutinn jað- ar og mýri með ríkjandi hálfgrösum, eink- um mýrastör. Verður legu, jarðvegsástandi og gróðurfari þessa lands lýst nánar í III. kafla hér á eftir. Tilraunabeitilandið var girt á sarna hátt og árið 1957 og sams konar brynning (Kristinn Jónsson og Stefán Aðalsteins- son, 1961). Uppskerumælingar á tilraunabeitiland- inu voru framkvæmdar þannig, að girtir voru af 64 m2 stórir reitir á fjórða hverju beitarhólfi, þ. e. sex reitir alls. Reitir þessir fengu sama áburðarmagn og beitilandið í kring. Þeir voru fyrst slegnir 2. júlí, næst 31. júlí og síðast 8. október. Var slætti hag- að þannig, að slegið var með handsláttu- vél utan af reitunum, unz um 10 m2 voru óslegnir eftir. Var síðan stærð þess svæðis, sem þá var óslegið, mæld nákvæmlega og uppskeran af því vegin. Sýni voru tekin við slátt af grasi af öll- TILRAUNIR MEÐ MJÓLKURKÝR 43 um reitunum til þurrefnisákvörðunar og ákvörðunar á hráeggjahvítu og fosfór. Kúnum í tilraun nr. 3 var beitt með öðrum kúm á há á gömlu, einslegnu túni í Laugardælum. Hafði verið borinn Kjarni á hluta af þessu túni eftir fyrsta slátt. Þetta tún var ekki hólfað sundur og ekki gerðar uppskerumælingar á því. Engar mælingar voru gerðar á uppskeru né gróðurfari út- hagans þetta ár. Kýrnar í tilraun nr. 3 höfðu aðgang að lækjarvatni á túni á daginn og sjálfbrynn- ingu í fjósi á nóttunni. VEÐURFAR SUMARIt) 1958 Þar eð ekki voru gerðar veðurathuganir í Laugardælum sumarið 1958, verður hér að styðjast við veðurathuganir, sem gerðar voru á tilraunastöðinni á Sámsstöðum og á Eyrarbakka þetta sumar. Tafla 2 sýnir meðalhita og úrkomu mánaðanna maí— október. Meðalhiti maímánaðar var undir meðal- lagi og sömuleiðis meðalhiti júnímánaðar. Meðalhiti septembermánaðar var verulega yfir meðallagi eða 3.2° C hærri en meðal- tal fjögurra næstu ára á undan á Sámsstöð- um. Meðalliiti mánuðina maí—september var að meðaltali 9.5° C á Sámsstöðum, en 9.4° C á Eyrarbakka. Úrkoma frá I. maí til 31. október var hagstæð, nema helzt í maímánuði, en þá var hún undir meðallagi. Úrkomudagar voru alls 89 á Sámsstöðum og 83 á Eyrar- bakka á tímabilinu 1. maí til 31. október. NIÐURSTÖÐUR TILRAUNANNA 1958 Uppskerumagn og efnasamsetning beitargrassins Uppskerumagnið af beitilandinu sumarið 1958 varð 87.2 hkg lieys af ha, eins og
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.