Náttúrufræðingurinn - 2020, Blaðsíða 10
Náttúrufræðingurinn
10
Hér kemur fram að fossinn sé 13–15
m hár, sem er ekki nákvæm tala og
Björn segir ekki hvernig hún er fengin.
Mönnum ber raunar kynlega illa saman
um hæð Öxarárfoss. Sigurjón Rist segir
hann vera 9 m háan í bókum sínum
Íslensk vötn14 og Vatns er þörf15 en Sig-
urður Þórarinsson telur hann 8 m í
skrá sinni Fossar á Íslandi.16,17 Hvor-
ugur þeirra nefnir með hvaða hætti þeir
mældu fossinn.
Matthías Þórðarson lýsir Þingvelli og
umhverfi hans manna best í bók sinni
Þingvöllur.18 Hann mældi fossinn hinn
14. nóvember 1928 og reyndist hann vera
12,5 m á hæð. Breidd hans, segir hann,
mjög misjafna eftir vatnsmagni árinnar.
Þegar mikið er í ánni fylli hún út í skarðið
í brún gjárinnar sem er 26,5 m á breidd.
Miðað við þessar upplýsingar er
fossinn einhvers staðar á bilinu 8–15 m
hár. Það er auðvitað óviðunandi að hafa
ekki öruggari vitneskju um fallhæðina
á sjálfum Öxarárfossi, einum frægasta
fossi landsins. Þess vegna var farið á
vettvang og fossinn mældur nákvæm-
lega. Auðvelt er fyrir tvo menn að mæla
hann með góðu málbandi. Annar fer á
fossbrúnina norðan ár. Þar er auðvelt
að athafna sig og ná mælingu niður
nánast lóðréttan klettavegginn frá brún
og niður í urðina undir fossinum. Hinn
maðurinn tekur þar við málbandsend-
anum og ber hann að vatnsborðinu.
Nákvæmnin er upp á 10 cm til eða frá.
Mælingin sýndi rúma 12 m, þ.e. svip-
aða tölu og Matthías Þórðarson fékk
enda hefur hann vafalítið beitt sömu
aðferð á sama stað. Neðan við fossinn
fellur áin síðan í flúð fram af urðinni
og niður í botn gjárinnar. Flúðin er um
tveggja metra há. Þar með er komin sú
fallhæð sem Björn Th. Björnsson nefnir.
Heildarfallhæðin er sem sagt um 14 m
samkvæmt mælingu með málbandi. Í
2. töflu eru gefnir upp nokkrir punktar
sem mældir voru með nákvæmu GPS
tæki. Þar sést að heildarfallhæðin við
fossinn er 13,89 m.
VATNAVEITINGAR FORNMANNA
Í Landnámu segir frá því þegar Ketil-
björn gamli Ketilsson og Helga Þórðar-
dóttir kona hans komu til Íslands þegar
nokkuð var liðið á landnámsöld og land
víða numið með ströndum fram. Þau
komu á skipi sínu Elliða og lögðu því í
ósa ánna sem síðan fengu nafn skipsins.
Fyrsta veturinn dvöldust þau hjá Þórði
skeggja föður Helgu á Skeggjastöðum á
Kjalarnesi. Um vorið fór Ketilbjörn að
leita sér að jarðnæði undir bú. Hann fór
austur yfir Mosfellsheiði með nokkra
fylgdarmenn. Þeir virðast hafa skoðað
sig vandlega um við Þingvallavatn en
ekki litist nógu vel á og fóru því austur
yfir Lyngdalsheiði. Þar kunnu þeir betur
við sig og námu stór héruð og reistu bæ
á Mosfelli. Í Landnámu segir um dvöl-
ina við Þingvallavatn:
„Þeir höfðu náttból og gerðu sér
skála. Þar heitir nú Skálabrekka. En er
þeir fóru þaðan komu þeir að á þeirri,
er þeir kölluðu Öxará. Þeir týndu þar
öxi sinni.“ Sagnaritarinn virðist telja að
Öxará hafi runnið skammt frá Skála-
brekku á landnámstíð.
Í Haukdælaþætti Sturlungu er sama
frásögn af Ketilbirni gamla og í Land-
námu en þó nákvæmari því söguritari
skýtur inn athugasemd um að áin renni
ekki lengur þessa leið. Þar segir:
„En þeir gerðu sér skála þar er þeir
höfðu náttból þar er þeir kölluðu að
Skálabrekku. En er þeir voru þaðan
skammt farnir þá komu þeir að árís
og hjuggu á vök og felldu í öxi sína,
og kölluðu hana af því Öxará. Sú á var
síðan veitt í Almannagjá, og fellur nú
eftir Þingvelli.“
Margir hafa velt fyrir sér hvort
nokkur fótur sé fyrir þeirri sögn að
fornmenn hafi veitt Öxará úr gömlum
farvegi sínum og beint henni niður
í Almannagjá. Engar fornar fyrir-
hleðslur eru þekktar eða veituleiðir.
Matthías Þórðarson telur að margt
bendi til að Öxará hafi verið farin að
falla til Almannagjár af og til löngu
fyrir landnám og að Efrivellir og Neðri-
vellir hafi myndast af framburði úr
ánni þótt áin hafi á landnámstíð fallið
vestan Almannagjár og um Árfarið
2. tafla. Nokkrir hæðarpunktar mældir með nákvæmu GPS-tæki. – Some GPS elevations.
Punktur
Elevation point
m y.s.
masl
Austur
East
Norður
North
Fossbrún Öxarárfoss
The edge of Öxarárfoss waterfall
132,84 397361 419865
Stórgrýti undir Öxarárfossi
Rocks at the toe of Öxarárfoss
121,86 397362 419865
Hylur neðan Öxarárfoss
The plunge pool of Öxarárfoss (surface)
119,05 397407 419875
Drekkingarhylur
Drekkingarhylur
107,27 397150 419331
Áin neðan brúar við Drekkingarhyl
Öxará downstream of Drekkingarhylur bridge
100,44 397244 419383
Peningagjá vatn
Peningagjá water surface
100,18 397343 419055
Peningagjá brú
Peningagjá bridge
103,50 397389 419058
Öxará neðan ræsis nálægt Þingvallabæ
Öxará near Þingvellir church
100,01 397281 419027
Lok borholunnar VH-13
VH-13 borehole cap
102,51 397378 419645