Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2020, Side 18

Náttúrufræðingurinn - 2020, Side 18
Náttúrufræðingurinn 18 Ritrýnd grein / Peer reviewed Colpidium striatum Urocentrum turbo Stygobromus gracilipes ciliate A Urceolaria urechi Vorticella gracialis Acineta flava Ephelota gemmipara Suctorida Apostomatida Philasterida 0.05 aLRT >= 90 70 <= aLRT < 90 aLRT <70 Synurella ambulans ciliate A Vampyrophrya pelagica Gymnodinioides sp. Hyalophysa Iwoffi Fusiforma themisticola Pseudocollinia beringensis Crangonyx islandicus ciliate A Paraclausilocola constricta Eudrilophyra complanata Cyrtolophosis mucicola Bursaria sp. Homalogastra setosa Glauconema trihymene Crangonyx islandicus ciliate B Crangonyx subterraneus ciliate A Fundur grunnvatnsmarflónna og erfðamynstrin vekja upp ýmsar frekari spurningar. Hvernig lifðu þær til dæmis af kuldaskeið ísaldar á Íslandi? Hver er fæða tegundanna, hvaða aðrar lífverur lifa í vistkerfi þeirra, og eru til sníkjudýr og afræningjar sem lifa á marflónum í þessu áður óþekkta vistkerfi? Þekkt er að ásætur lifi á yfirborði krabbadýra, svo sem á marflóm og rækjum, og nær- ast ásæturnar meðal annars á hömum þeirra eftir hamskipti. Í þessari grein verður greint frá niður- stöðum úr doktorsverkefni Etienne Kornobis17 og einnig nýlegri niður- stöðum sem Ragnhildur Guðmunds- dóttur hefur aflað í doktorsverkefni sem hún vinnur að um bakteríur og bifdýr18 í vistkerfi grunnvatnsmarflónna. AÐFERÐIR OG NIÐURSTÖÐUR BIFDÝR Við raðgreiningar á innröðum ribó- sómal-gena í íslandsmarfló (18S rRNA, 5S rRNA og 28S rRNA), sem þekktar eru sem ITS (e. Internal transcribed spacer),15 greindust í sumum tilvikum illlæsilegar DNA-raðir sem voru vegna ólíkra DNA-búta í sama raðgreinda sýni, í þeim tilvikum getur sama kirni komið fyrir í sama sæti t.d. G og A. Með því að aðskilja DNA-bútana og rað- greina þá hvern í sínu lagi kom í ljós að í sýnunum voru DNA-raðir úr bæði bif- dýrum og marflóm. Við nánari athugun á marflónum, bæði með venjulegri smásjá og rafeindasmásjá, fundust ólík byggingarform ásætna á marflónum (4. mynd).18 Algengasta formið var kúlu- laga form á stilk og virtist það gefa sig við þrýsting þegar sýni voru undirbúin fyrir rafeindasmásjá. Yfirborð kúl- unnar rofnaði og féll að kornóttu inni- haldi og er hér mögulega um að ræða gróhirslu (e. sporocyst) (4. mynd A). Önnur útlitsform bentu til að um bif- dýr væri að ræða (4. mynd B–D). Til að greina þennan breytileika í ásætum á yfirborði marflónna voru prófaðir þekktir þreifarar sem hafa verið not- aðir til að greina tegundir úr sveppum, bakteríum (16S rRNA) og bifdýrum (18S rRNA) en DNA magnaðist aðeins með bifdýraþreifurunum. Í kjölfarið voru bifdýraþreifararnir notaðir til að magna og raðgreina sýni af íslandsmarfló og af ýmsum tegundum marflóa innan sömu ættar, Crangonyx subterraneus frá Þýskalandi, Synurella ambulens frá Slóveníu, og Crangonyx pseudogracilis frá Frakklandi.18 Þá var einnig greindur landfræðilegur breytileiki í ITS-DNA- röðum fyrir algengustu tegundina á Íslandi (af ættbálki Apostomatida), en ITS-raðir eru þekktar fyrir háan breytileika innan tegunda. Raðir feng- ust úr sýnum frá Suður- og Norður- Þingeyjarsýslum og frá Þingvöllum, en ekki gekk að fá raðir frá öðrum sýnum af Suðurlandi. Líkt og fyrir greiningar á ITS-röðunum í marflónum fannst mesta aðgreiningin (p < 0,001) á milli sýna frá Norðurlandi og Suðurlandi en einnig var munur á milli Suður- og Norður-Þingeyjarsýslu (p = 0,049) innan þessarar bifdýrategundar. Flokkunarfræðileg greining, byggð á niðurstöðum úr 18S rRNA-röðum og sambærilegum röðum úr skyldum tegundum sem fengust úr genabanka (https://www.ncbi.nlm.nih.gov/gen- bank/), sýndi að á Íslandi eru að minnsta kosti tvær ólíkar tegundir, sem svipar til þekktra bifdýrategunda innan Apostom- atida- og Philasteridea-ættbálkanna (5. mynd).18 Apostomatida-bifdýr lifa á krabbadýrum og hömum þeirra en hafa hingað til eingöngu fundist í sjó.19 Innan Philasteridea-ættbálksins má finna fjöl- breyttari lífsmáta en meðal Apostom- atida-bálksins, bæði bifdýr sem stunda samlífi með ýmsum dýrahópum og bifdýr sem lifa sjálfstætt án slíks sambýlis.19,20 3. mynd. Hálfmelt eintak af þingvallamarflónni, Crymostygius thingvallensis, sem fannst í maga bleikju sem veidd var í Skarðslæk í Landssveit. Stæð um 2 cm. – A half digested specimen of Crymostygius thingvallensis, found in the stomach of Arctic charr, Salvelinus alpinus, caught in Skarðslækur, South Iceland. Size 2 cm. Ljósm./Photo: Wim van Egmond 2018 fyrir/for Náttúruminjasafn Íslands/Icelandic Museum of Natural History.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.