Náttúrufræðingurinn - 2020, Síða 25
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
25
He
st
vík
Sa
nd
ey
jar
dj
úp
Hagavík
Nesjaey
Sandey
Skálabrekkusker
2 km
1
2
3
4
Dýpi
0–10 m
10–20 m
20–40 m
40–60 m
60–80 m
80–100 m
100–120 m
öðrum svifdýrum. Svifdýrin eru síðan
mikilvæg fæða stærri dýra á borð við
fiska, svo sem murtunnar, sem er eitt
bleikjuafbrigðanna í Þingvallavatni.
Sviflífverur hafa allajafna fremur
stuttan lífsferil og eru kynslóðaskipti því
ör.8,9 Þær geta því náð miklum þéttleika
á stuttum tíma við hagstæðar aðstæður.
Margar tegundir þeirra eiga sér ákveðnar
kjöraðstæður hvað varðar vatnshita og
styrk næringarefna, og hægt er að miða
við tilvist vissra tegunda, magn þeirra
og/eða tegundasamsetningu svifsamfé-
laga þegar metin eru vatnsgæði og ástand
vatna.10 Dæmi um þetta eru mælingar á
magni blaðgrænu. Þær gefa vísbendingar
um magn svifþörunga og eru notaðar
beint sem mælikvarði á vatnsgæði.
Árin 1974–1977 fóru fram viðamiklar
rannsóknir á svifvist Þingvallavatns.11
Tegundir krabba- og þyrildýra voru
greindar, og stofnstærð og vöxtur helstu
tegunda metinn og mældur samfellt á
rannsóknartímanum. Rannsóknir þessar
skiluðu ýtarlegum upplýsingum um líf-
ríki og umhverfisaðstæður í vatninu og
má nota þær til samanburðar við niður-
stöður rannsóknarinnar sem hér segir frá.
AÐFERÐIR OG EFNIVIÐUR
Á upphafsárum vöktunarinnar, 2007–
2009, fór sýnataka fram á þremur
stöðvum í vatninu (2. mynd). Tekin voru
sýni og mælingar gerðar á einu dýpt-
arsniði á hverri stöð. Að þremur árum
liðnum þótti ljóst að stöðvarnar þrjár
endurspegluðu nokkuð vel hver aðra
og var þá ákveðið að einfalda sýnatök-
una og beina sjónum að einni stöð, stöð
2. Árið 2015 voru aftur tekin sýni bæði
á stöð 2 og stöð 3. Var það gert til að
færa sýnatökuna á meira dýpi og fylgj-
ast með lífverum neðan 40 metra dýpis.
Botndýpið á stöð 2 er 43 metrar en um
80 metrar á stöð 3. Árið 2016 voru sýni
eingöngu tekin á stöð 3. Hitamælingar
með síritum hafa þó frá árinu 2010 farið
fram á stöð 2. Frá árinu 2008 voru sýni
einnig tekin og mælingar gerðar í útfalli
vatnsins, á stöð 4 (2. mynd). Árið 2015
varð jafnframt sú breyting á að Gunnar
Steinn Jónsson þörungafræðingur tók
við greiningu svifþörunga,12,13 en fyrstu
fjögur árin voru sýnin greind hjá Bio-
limno Research & Consulting í Kanada.
Sýni frá árunum 2011–2014 hafa ekki
verið unnin. Heildaryfirlit um sýnatökur
á tímabilinu 2007–2016 má sjá í 1. töflu.
Framkvæmd verkefnisins hefur því
þróast nokkuð í tímans rás og gerir
væntanlega áfram, enda vekja fyrirliggj-
andi niðurstöður upp spurningar, jafn-
framt því að varpa nýju ljósi á aðstæður
í vatninu. Niðurstöður verkefnisins
hafa verið gefnar út í árlegum skýrslum
Náttúrufræðistofu Kópavogs fyrir árin
2007–2016 og í þeim má finna nánari
lýsingu á sýnatökuaðferðum og niður-
stöðum viðkomandi árs. Skýrslurnar er
að finna á vefsetri Náttúrufræðistofu
Kópavogs.14 Að auki kom út yfirlits-
skýrsla þar sem teknar voru saman
niðurstöður fyrir fimm fyrstu ár vöktun-
arinnar, 2007–2012.15 Hér verður aðeins
lýst aðferðum við sýnatöku og gögnum
Þörungasvif
Phytoplankton
Blaðgræna-a
Chlorophyll-a
Dýrasvif
Zooplankton
Efnagreining
Chemical factors
Eðlisþættir, sjóndýpi
Physical factors, secchi depth
Ár / Stöð
Year / Station
1 2 3 4 1 2 3 4 1 2 3 4 1 2 3 4 1 2 3 4
2007 12 24 12 12 12 12 12 12 12 3 x x x
2008 19 4 9 20 16 4 9 19 16 4 1 x x x x
2009 13 4 12 20 16 4 12 20 16 4 x x x x
2010 15 10 25 12 25 4 6 x x
2011 20 4 20 8 20 4 6 x x
2012 25 5 25 11 25 5 4 x x
2013 20 8 20 10 20 4 8 x x
2014 20 10 20 10 20 6 8 x x
2015 20 69 10 20 32 4 20 32 4 8 1 x x x
2016 71 4 44 4 35 4 8 x x
Samtals 12 176 152 59 33 182 120 67 33 181 111 39 43 9 1
1. tafla. Heildaryfirlit yfir sýni og mælingar á vegum Náttúrufræðistofu Kópavogs við vöktun lífríkis í Þingvallavatni á stöð 1–4 á tímabilinu
2007–2016. Tölur í töflunni merkja fjölda sýna. Eðlisþættir sem mældir voru eru vatnshiti, sýrustig og rafleiðni vatns. Árlega voru farnar fjórar
reglubundnar ferðir til sýnatöku og mælinga. Á stöð 1 voru sýni tekin á þremur dýpum (1, 5 og 25 m). Á stöð 2 voru sýni tekin á fimm dýpum (1,
5, 10, 25 og 35 m), að undanskildu árinu 2007 þegar þau voru tekin á þremur dýpum, þeim sömu og á stöð 1. Á stöð 3 voru sýni tekin á þremur
dýpum árið 2007 (1, 5 og 25 m), á fjórum dýpum árin 2008 og 2009 (5, 10, 25 og 35 m) og á átta dýpum árin 2015 og 2016 (1, 5, 10, 25, 35, 45,
55 og 65 m). Á stöð 4 í útfalli Þingvallavatns voru sýni tekin á 1,5 m dýpi af stíflugarði Steingrímsstöðvar. Að auki var 10 hitasíritum komið fyrir
á stöð 2 með jöfnu millibili frá 4 m dýpi og niður á 40 m dýpi. – Number of samples in the monitoring of water quality and zooplankton in Lake
Þingvallavatn at stations 1–4 in 2007–2016, conducted by Náttúrufræðistofa Kópavogs. Sampling was conducted four times each year (May,
July, August, October). Samples were taken at five different depths on a depth profile (1, 5, 10, 25 and 35 m).