Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2020, Síða 40

Náttúrufræðingurinn - 2020, Síða 40
Náttúrufræðingurinn 40 mótun stefnu um umgengni og nýtingu og vernd þeirra margbrotnu gæða sem í vistkerfi vatnanna felast. Hér er vísað til framlags Péturs á sviði náttúruverndar á Íslandi, sem verður seint fullþakkað. Í kjölfar rannsókna á Mývatni var vatnasvið Mývatns friðað með lögum 1974 (nr. 36/1974) og átti Pétur þar mikinn þátt því að rannsóknir hans og samstarfsmanna hans voru grundvöllur að lagasetningunni. Þarna sýndi sig hve framsýnn Pétur er. Hann sá til þess að allt svæðið sem hefur áhrif á vistfræði vatnsins var friðlýst, og það er einmitt þessi heildarsýn á náttúrufyrirbrigði og umgjörð þeirra sem nú er lögð áhersla á í mörgum ríkjum, og endurspeglast meðal annars í Vatnatilskipun Evrópu. Þó að þinghelgi Þingvalla hafi verið friðuð árið 1928 til að halda skipulagi Alþingishátíðarinnar í föstum skorðum, þá var og er Pétur enn ötull talsmaður þess að stækka þjóðgarðinn og friðlýsa Þingvallavatn og allt vatnasvið þess. Á grundvelli þekkingarsköpunar Péturs og fyrir atbeina hans má þakka honum að verulegu leyti setningu nýrra laga um þjóðgarðinn á Þingvöllum (nr. 47/2004) og laga um verndun Þingvallavatns og vatnasviðs þess (nr. 85/2005). Í 4. grein laganna um þjóðgarðinn er fjallað sér- staklega um verndun Þingvallavatns, þ.e. þess hluta vatnsins sem er innan marka þjóðgarðsins. Þar segir að innan þjóðgarðsins sé „óheimilt að gera nokkuð það sem getur spillt eða mengað vatn þar, bæði vatn á yfirborði og grunn- vatn“. Ennfremur: „Vernda skal lífríki Þingvallavatns og gæta þess að raska ekki búsvæðum og hrygningarstöðvum bleikjuafbrigða og urriðastofna sem nú lifa í vatninu.“ Þá er Þingvallanefnd „heimilt að setja sérstakar reglur til að framfylgja þessum ákvæðum um vatns- vernd innan þjóðgarðsins“. Tilgreint er um heimildarákvæði fyrir setningu sérstakra reglna í 7. grein laganna að þau geti átt við í tengslum við meðferð spilliefna, frárennsli og flutning á meng- andi efnum innan þjóðgarðsins. Líkt og í lögunum um þjóðgarðinn er í lögunum um verndun Þingvallavatns og vatnasviðsins, sem og í tilheyrandi reglugerð (650/2006), að finna ákvæði sem augljóslega eru ættuð beint úr ranni Péturs. Skýr dæmi um þetta er að finna í 5. og 18. grein reglugerðarinnar um framkvæmd verndunar vatnasviðs og lífríkis Þingvallavatns. Í 5. grein, sem er eins konar lykilgrein að verndun vatns- ins, er Þingvallavatn og vatn á verndar- svæðinu skilgreint sem „viðkvæmur viðtaki“ og tiltekið að það skuli falla í „flokk A sem ósnortið vatn, sbr. reglu- gerð um varnir gegn mengun vatns“ (þ.e. nr. 796/1999). Þá segir í 18. grein að Heilbrigðisnefnd Suðurlands skuli gera grein fyrir flokkun Þingvallavatns í samræmi við reglugerð nr. 796/1999 miðað við fyrirliggjandi gögn og þar er tekið fram, sem er eftirtektarvert, að „Þingvallavatn telst viðkvæmt fyrir köfnunarefnismengun, sbr. reglugerð um varnir gegn mengun vatns af völdum köfnunarefnissambanda frá landbúnaði Hér stendur Pétur á svölum eins af húsunum sem hýstu Vatnalíffræðistofnun Hafnarháskóla við Helsingørsgade í Hillerød. Þar hafði stofnunin aðsetur í meira en 100 ár, frá 1908 til 2013 þegar hún var flutt til Kaupmannahafnar. Pétur stýrði stofnuninni á árunum 1977–90. Útsýnið er ekki af verri endanum, með Friðriksborgarhöll og Slotsøen í bakgrunni.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.