Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2020, Side 41

Náttúrufræðingurinn - 2020, Side 41
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 41 og öðrum atvinnurekstri“. Hér skína í gegn áhyggjur Péturs af hættunni sem lífríki Þingvallavatns stafar af aukinni ákomu niturs (köfnunarefnis) en upp- sprettur þess tengjast einkum bruna jarðefnaeldsneytis og fráveitu og losun skólps. Nitur er, einkum í formi upp- leysts nítrats (NO3), það næringarefni sem helst er af skornum skammti fyrir þörunga og plöntur í stöðuvötnum á Íslandi8,9 og því kann aukning í ákomu niturs að leiða til breytinga á frumfram- leiðnikerfum vatnsins, með ófyrirsjá- anlegum afleiðingum fyrir vistkerfið í heild. Hér byggir Pétur ekki aðeins á rannsóknarniðurstöðum í sjálfu Þingvallavatni og vatnasviði þess, heldur nýtir hann einnig þekkingu sína á vötnum erlendis sem glíma við afleiðingar niturmengunar. Barátta Péturs fyrir hreinu og tæru Þingvallavatni hefur verið einörð og allt lagt undir til að forða því að vatnið mengist frá sumarhúsabyggð og aukinni umferð.10 Nýjustu rannsóknir í Þing- vallavatni renna stoðum undir áhyggjur Péturs af aukinni niturákomu í vatnið11,12 og er brýnt að bregðast við. Við þetta má bæta að rannsóknir Péturs og samstarfsmanna hans áttu mikinn þátt í að Þingvellir og nyrsti hluti Þingvallavatns voru samþykkt á Heimsminjaskrá UNESCO árið 2004 sem menningararfleifð. Árið 2011 var skref tekið til frekari verndar vatns- ins og vatnasviðsins. Stjórnvöld lögðu þá fram tillögu til Heimsminjanefndar Sameinuðu þjóðanna þess efnis að Þing- vallavatn og allt vatnasviðið verði sett á yfirlitsskrá um þá staði sem ætlunin er að tilnefna sem heimsminjar UNESCO vegna einstakrar náttúruarfleifðar. Þegar þetta er ritað hefur þessi tilnefn- ing ekki gengið eftir. MIÐLUN ÞEKKINGAR Á sviði útgáfu og miðlunar rann- sóknarniðurstaðna hefur Pétur verið afar afkastamikill. Auk náms- og próf- ritgerða liggja eftir hann ríflega eitt hundrað vísindagreinar, bókarkaflar og bækur um vatnavistfræði og nátt- úruvernd (sjá ritaskrá í viðauka). Efn- inu hafa að mestu leyti verið gerð skil í erlendum fagritum sem eru misaðgengi- leg almenningi og einkum ætluð vís- indasamfélaginu. En Pétri er ekki síður annt um að fræða og upplýsa almenning og opna augu hans fyrir náttúrunni og undrum hennar. Í þessu skyni stóð Pétur ásamt Páli Hersteinssyni að útgáfu bók- arinnar Þingvallavatn: Undraheimur í mótun, veglegu riti fyrir almenning sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2002 í flokki fræðirita. Í bókinni er fjöldi ritgerða um vatnið, mótunar- sögu og lífríki þess og vatnasviðsins alls, svo og greinar eftir Pétur sjálfan um verndargildi vatnsins og vatnasviðsins. Síðasta afrek Péturs á sviði almenn- ingsfræðslu var unnið árið 2011 þegar út kom bókin Lake Þingvallavatn – a world evolving á vegum bókaútgáfunnar Opnu.13 Bókin er 326 blaðsíður og ætluð enskumælandi náttúruunnendum. Eldhuginn lætur ekki deigan síga, langt kominn á tíræðisaldurinn. Hér situr Pétur við skriftir á heimili sínu í Hillerød 2015. Ljósm. Álfheiður Ingadóttir.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.