Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2020, Page 120

Náttúrufræðingurinn - 2020, Page 120
Náttúrufræðingurinn 120 0 500 1000 1500 2000 2500 3000 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 Þingvallavegur við Gjábakka Fjöldi ökutækja á sólarhring Fj öl di Ár Meðaltal á ári Meðaltal að sumri Meðaltal að vetri 5. mynd. Þróun bílaumferðar á Þingvallavegi við Gjábakka 2006–2019. Myndin sýnir fjölda bíla að meðaltali á sólarhring. Minni umferð 2018 til 2019 má líklega rekja til endurbóta og lokunar Gjábakkavegar innan Þjóðgarðsins. Fallið gæti verið vísbending um að a.m.k. um þriðjungur ferða sé gegnumstreymisumferð. Heimild: Umferðartalning Vegagerðarinnar.15 b Lögverndarsjóður náttúru og umhverfis var stofnaður árið 2002 í því skyni að veita fjárhagsstuðning til að fá úrlausn vegna lögfræðilegra álita- mála sem snerta náttúru- og umhverfisvernd. Stofnendur voru meðal annars Landvernd og Fuglavernd. STEFNA Í mars 2008 stefnir Pétur M. Jón- asson Vegagerðinni. Guðjón Ólafur Jónsson hæstarréttarlögmaður flytur málið.16 Þess er krafist að úrskurður umhverfisráðherra frá 10. maí 2007 verði ógiltur. Til vara að hann verði ógiltur hvað varðar leið 7 vestur Eld- borgahraun að Þingvallavegi. Málaferlin Málatilbúnaður fyrir dómstólum var bæði lagatæknilegur og efnislegur. Aðalkrafan – ógilding á úrskurði Lögum um mat á umhverfisáhrifum var breytt 24. maí 2005 og tóku breytingarnar gildi 1. október sama ár. Í fyrsta lagi var því krafist ógildingar vegna þess að matið hafði ekki farið fram samkvæmt gildandi lögum, en Vega- gerðin hóf seinna mat vegar 365 á vor- dögum 2005 og skilaði skýrslu 30. sept- ember sama ár. Vegagerðin óskaði eftir því að matið færi eftir gömlu lögunum en ekki þeim sem tóku gildi degi síðar. Hins vegar kom í ljós að skýrslan var ófullburða skjal og þurfti því að breyta henni og bæta við hana eftir skilatímann til þess hún yrði matstæk. Viðbætur og lagfæringar sem fylgdu í kjölfarið voru svo umfangsmiklar að lögmanni Péturs þóttu þær benda sterklega til þess að skýrslan sem skilað var fyrir 1. október hafi í raun verið málamyndagjörningur. Í öðru lagi var krafist ógildingar mats- ins vegna meints vanhæfis skipulags- stjóra sem undirritaði úrskurðinn og umsagnir til umhverfisráðherra í eft- irfarandi kæruferli. Sonur þáverandi skipulagsstjóra hafði umsjón með mats- ferlinu fyrir hönd verkfræðistofu sem vann á vegum Vegagerðarinnar að mál- inu. Þessi vensl voru tilefni efasemda um hæfi skipulagsstjóra. Efasemdir um hæfi eru nægjanleg forsenda til að ógilda niðurstöðu. Í þriðja lagi voru færð rök fyrir því að andmælaréttur Péturs M. Jónassonar í kæruferlinu hefði verið brotinn þar sem hann fékk ekki tækifæri til að kynna sér og tjá sig um efni sem höfðu verulega þýðingu fyrir afgreiðslu málsins. Í fjórða lagi var krafist ógildingar þar sem rannsóknarreglan hefði verið brotin. Í kæruferlinu hafði ekki verið leitað umsagnar mikilvægra aðila á borð við Þingvallanefnd, Náttúrufræðistofnun Íslands, Ferðamálaráð og Náttúru- fræðistofu Kópavogs sem sér um vöktun vatnsins. Ráðherra sinnti ekki heldur áskorunum og aðvörunum nær allra vatnafræðinga og vatnalíffræðinga sem á þeim tíma störfuðu á landinu. Í fimmta og síðasta lagi var krafist ógildingar þar sem umhverfisráðherra byggði úrskurð sinn meðal annars á reglugerð, um verndun Þingvallavatns, sem ekki var í gildi þegar sjálft matið fór fram. Varakrafa – fella úr gildi mat á leið 7 yfir Eldborgahraun Varakrafa var gerð um að úrskurður umhverfisráðherra yrði ógiltur hvað varðar leið 7 vestur Eldborgahraun að Þingvallavegi. Hún var studd fjöl- mörgum efnislegum rökum um veruleg óafturkræf umhverfisáhrif vegarins og um að þær fullyrðingar stæðust ekki efnisleg rök að vegurinn bætti sam- göngur í Bláskógabyggð og yki umferð- aröryggi og aðgengi ferðamanna og gesta frístundabyggðar. Meðal annars var vísað til þess að rök um akstur skóla- barna úr Þingvallasveit að Laugarvatni væru ekki haldbær og sama væri að segja um styttingu ferðatíma. Tilgreind voru sennileg áhrif á einstakt lífríki Þingvallavatns, svo sem á dverg- og kuðungableikju í Ólafsdrætti þar sem vaxandi bílaumferð myndi auka nitur- mengun og þar með þörungablóma. Hætta á mengun á framtíðarvatnsbóli suðvesturhluta landsins og óafturkræf spjöll á Eldborgahrauninu voru einnig tilgreind. Bent var á að allir fagaðilar á sviði umhverfis- og náttúrumála hefðu tekið undir þessi sjónarmið. DÓMUR Hinn 5. desember 2008 liggur fyrir dómur héraðsdóms.17 Dómarar fallast hvorki á lagatæknileg né efnisleg rök. Vegagerðin er sýknuð, bæði af aðal- kröfu og varakröfu. Málskostnaður er felldur niður. Lögverndarsjóður náttúru og um- hverfis vegna lögfræðilegra álitamálab hafði staðið undir kostnaði við mála- ferlin. Þegar lagt var mat á rökstuðn- ing dómsins og fjárhagsstöðu sjóðsins var ekki talið mögulegt að halda þeim stuðningi áfram. Pétur var þó ekki á sama máli og lögmaður hans taldi ekki óhugsandi að niðurstaða Hæsta- réttar gæti orðið önnur. Ein skýring
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.