Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2011, Blaðsíða 59
Ýmislegt um afréttarmál í Útmannasveit
Grenjaskyttan Dagbjartur Jónsson í Grœnuhllð. Myndin er tekin á Eyjum utan við þjóðveg. A þessum slóðum
fannstjyrst greni árið 2001. Ljósmynd: Hjalti Stefánsson.
fyrirfarandi ár, þá er þeim uppálagt að ganga
eingöngu í Hrafnabjargabúfjárhaga.
Nl: (nefnilega) Það (land) sem Knarará
ræður að utan og Langahlíð að ofan, til
Krákugilsár, og að framan þar sem hún fellur
í Jökusá, og Jökulsá í Selfljót; frá Gagnstöð
og Heyskálum leiti (menn) með Osbúenda
• búfjárhögum, þar Víðrun(n)argil ræður.
Rœður (endurtekið sctmkv. handriti) til Bröttu-
brekku, að ofan Brattabrekka til Sjónhrauns-
brúnar og úr Sjónhraunsbrún í Hádegisfjall
og svo að framan í Rjúpnafellsenda. Og svo
sem Knarará ræður (rennur) ofan til Selfljóts.
Frá Hlaupandagerði og Sandbrekku búljár-
hagar það sem Jökulsá ræður að utan frá henni
beinleiðis í Skemmuvatn, síðan í Sandvatn og
loksins til Sandár að ofan. Sandá ræður að
framan til Bjarglandsár og úr því til Selfljóts.
Klúku- og Engilækjarbúendur hafí leit á
Eyjum ef þörf krefur. Frá Dölurn, Kórekstaða-
gerði og Kóreksstöðum; Bjarglandsá ræður að
austan og beint úr henni að ofan í Hvannafeli
að framan í Hrísá beint úr því. (Hér er nokkuð
óljóst, þó hygg ég að línan sem afmarkar
leitarsvœðið að sunnan (framan) hljóti að
vera eins og landamerki upplands Kóreks-
staða úr Hölknárós beinlínis í Hrísá þarsem
hún fellur niður Vörðubrekku sunnan Yxnis-
fells en er þá norðan við Há- Hvannafeiiið)
Frá Jórvík, Jórvíkurhjáleigu, Svínafelli
og Hjaltastað, frá Selfljóti að utan og norðan
allt fram að Merkiþrepi, (Sennil. á mörkum
Rauðholts og Hjaltast., nú Grœnuhlíðar)
þaðan að framan austur í merki (við Staðará
) og þaðan í Hrísá(rkrók) að austan, hún ræður
þar eftir landi. (=leitarsvæði).
57