Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2011, Blaðsíða 99
Sigurður Kristinsson
Skyggnst að baki tímans tjalda
Heimildir benda til að allt frá 16. öld
hafí afkomendur Þorsteins Jökuls
búið nærri samfellt á Eiríksstöðum
á Jökuldal og eru þar enn þegar þetta er ritað.
A síðustu áratugum 18. aldar og fram yfír
aldamótin bjuggu þar hjónin Þorkell (1595)
Einarsson f. um 1755 og Hróðný (4692) Páls-
dóttir f. um 1748 Sigmundssonar frá Lang-
húsum í Fljótsdal. Foreldrar Þorkels voru
Einar (2476) Jónsson frá Görðum í Fljóts-
dal, f. um 1726, d. 1812 og Solveig (1569)
Þorkelsdóttir á Eiríksstöðum, f. um 1728, d.
1792. Nafn hennar ber á góma í sögnum um
Gunnlaug (2407) Arnason frá Brú en hann
var myrtur í Hrafnkelsdal árið 1749. Nafn
Gunnlaugs varir enn meðal afkomenda Einars
og Solveigar. En ævikjör þeirra nafna hafa
misjöfn reynst.
Börn Þorkels og Hróðnýjar voru fjögur
og verða talin hér eftir aldri: Guðrún (1596)
f. um 1780, sem sagt er frá hér á eftir; Sol-
veig (1626) f. um 1786, sem giftist Jóni Þor-
steinssyni á Melum í Fljótsdal; Gunnlaugur
(1627) f. um 1787, bóndi á Eiríksstöðum
og Einar f. um 1791, d. 1811. Fósturbörnin
voru þrjú: Guðrún Einarsdóttir f. um 1796;
Oddur Sæbjömsson f. um 1798 og Guðlaug
Jóhannesdóttir f. 1804. Hún var dótturdóttir
þeirra og um hana verður sérstakur kafli síðar
í þessari ritgerð. Guðbjörg Sigfúsdóttir frá
Asi í Fellum var þar allmörg ár í æsku og má
einnig teljast fósturbarn.
Brú á Efra-Dal er næsti bær innan við
Eiríksstaði. Um þetta leyti bjó þar Einar
(1571) Einarsson f. 1766, bróðir Þorkels á
Eiríksstöðum. Afkomendur hans bjuggu þar
áfram en sumir dreifðust víða. Síðastur þeirra
bjó á Brú Bjöm (1579) Einarsson, sem fluttist
þaðan eftir öskufallið 1875, fyrst til Vopna-
fjarðar og þaðan til Ameríku. Hann syrgði það
alla ævi að hafa ekki flust aftur að Brú. Kona
hans hét Jóhanna (9511) Jóhannesdóttir. í Æ.
Au. er hún sögð hafa verið hin vonlausa ást
Kristjáns Jónssonar fjallaskálds.
Sögn er að á jólanótt 1804 hafi heimafólk
á Eiríksstöðum setið við spil í baðstofunni en
það var þá nýlunda. Varð fólkinu sundurorða
og lá við stóryrðum. Komu þá í ljós tveir
tígulkóngar í spilunum. Leist fólkinu ekki á
blikuna, því um leið kom eitthvert skrímsli
í uppgönguna. En Einar á Brú vaknaði mjög
snemma um nóttina og sagði að nú ætti Þor-
kell bróðir sinn bágt, bjóst af stað í snatri,
kallaði á vinnumann sinn með sér og þeir fóru
út að Eiríksstöðum. Þegar þangað kom, fór
Einar inn um glugga á baðstofúnni, gat náð
97