Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2011, Blaðsíða 119
Gilsárvalla-Gvendur
Innsveit í Borgarfirði eystra frá eyðibýlinu Hvoli. Gilsárvöllur framundan. Ljósm. HG.júli 1968.
móðursystir Sigurðar. Bræður Sigurðar fjórir
talsins urðu gildir bændur eystra: Stefán í
Stakkahlíð, Gunnar (eldri) á Amhólsstöðum
og síðar Bessastöðum í Fljótsdal, Gunnar
(yngri) á Brekku og Benedikt í Klúku í Fljóts-
dal og síðar á Amórsstöðum á Jökuldal. Því
em þeir nefndir hér til sögunnar að Gvendur
átti síðar eftir að verða tíður gestur á heimilum
þeirra.3
Á Hjartarstöðum í Eiðaþinghá bjuggu um
miðja 19. öld Vilhjálmur Árnason og kona
hans, Guðný Sigurðardóttir frá Skógum, systir
Soffiu. Hjá þeim hjónum var Gvendi litla komið
fyrir um leið og móðir hans fór að Desjar-
mýri í Borgarfirði eystra og þar dvaldi hann í
níu ár eða þar til hann var 19 ára gamall 1854.
Móðir hans var þá orðin húsfreyja á Gilsár-
velli í sömu sveit þangað sem hún réðist ráðs-
kona til Ólafs Stefánssonar bónda sem misst
hafi konu sína. Tóku þau Ólafur brátt saman
3 í Völuskjóðu (s. 73) er séra Sigurður Gunnarsson ranglega sagður
bróðir Soffiu.
og með honum eignaðist Soffiia þrjú böm,
Stefaníu, sem lengi var ljósmóðir á Borgar-
firði eystra (d. 1936), Guðnýju, húsfreyju í
Klúku í Hjaltastaðarþinghá, og Þorstein, með-
hjálpara og forsöngvara í Desjarmýrarkirkju.
Frá Hjartarstöðum kom Gvendur í þennan
hóp eftir að móðir hans tók hann til sín að
Gilsárvelli4 þegar aðstæður hennar leyfðu.
Var hann þar að mestu viðloðandi næstu tvo
áratugi og afitur síðustu 15 árin sem hann lifði
og þá hjá Stefaníu, hálfsystur sinni.
Vangefinn en líkamlega öflugur
Snemma mun hafa komið í ljós að Gvendur
litli var ekki sem fólk er flest og mikið skorti
á andlegan þroska hans. Um þetta segir Hall-
dór Ármannsson frá Snotrunesi í frásögn af
Gvendi sem víða er moðað úr í þessari grein:5
4 Hér er bæjarnafnið ritað Gilsárvöllur eins og nú og fyrr á tíð, en
á 20. öld var lengst af ráðandi fleirtölumyndin Gilsárvellir.
Afleiddar orðmyndir eru hér hins vegar samkvæmt hefð og
framburði skrifaðar Gilsárvalla- [Gilsárvalla-Gvendur, Gilsár-
vallahjáleiga].
5 Halldór Armannsson. Gilsárvalla-Gvendur. Tíminn - Sunnudags-
blað, 19. tbl. 1963, s. 448-452. , , 7