Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2011, Blaðsíða 65
Tjarnaklukkan á Hálsum við Djúpavog
Háhar í Djúpavogshreppi, horft til Búlandstinds og inn Berafjörð. Ljósmynd: Andrés Skúlason (2007).
ekki ganga í framtíðinni en hreindýrum verður
seint haldið frá. Það verður þó tjamaklukk-
unum að skaðlausu.
Landeigendur tóku tillögunni um friðun
afar jákvætt og varð friðun svæðisins því
auðveldlega við komið. Fá sveitarfélög
hafa eins skýra og metnaðarfulla stefnu í
umhverfismálum og Djúpavogshreppur og
hefur stefnan hlotið verðskuldaða athygli.
Þar gera heimamenn sér fulla grein íýrir því
að vernduð náttúran er auðlind bæði fyrir
heimafólk að njóta og til að kynna ferða-
mönnum, sem í auknum mæli hafa ástæðu til
að staldra við í sveitinni. Vemdun búsvæðis
tjamaklukkunnar er enn ein rós í hnappagat
sveitarfélagsins. Til hamingju, Djúpavogs-
hreppur.
Heimildir
Larsson, S.G. & Geir Gígja 1959. Coleoptera 1.
Synopsis. Zoology of lceland III, Part 46a.
Munksgaard, Kaupmannahöfn. bls. 218.
María Harðardóttir, Erling Olafsson, Kristinn
Haukur Skarphéðinsson, Sigmundur Einarsson,
Sigurður H. Magnússon, Starri Heiðmarsson
& Jón Gunnar Ottósson 2008. Verndun svæða,
vistgerða og tegunda. Tillögur Náttúrufræði-
stofnunar Islands vegna náttúruverndaráætl-
unar 2009-2013. Náttúmffæðistofnun íslands,
SkýrslaNÍ 08008. bls. 85.
Nilsson, A.N. & M. Holmen 1995. The aquatic
Adephaga (Voleoptera) of Fennoscandia and
Denmark. II. Dytiscidae. Fauna Entomologica
Scandinavica. Vol.32. E.J. Brill, Leiden, New
York, Köln. bls. 192.
63