Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2011, Blaðsíða 60
Múlaþing
Frá Rauðholti og Ánastöðum fyrir framan
úr Selfljóti upp merkigarð í Nípu og síðan í
Slakkann í Geitabjörgum, fram(an)vert úr
Ánastaðavatni í Merkiþrep framanvert við
Hrafndal og utanvert við Háuhraun fremri
og svo í Grjóthálsalæk og beinlínis síðan í
Hölkná.
Frá Hreimsstöðum og Hrjót frá Sel-
fljóti að vestan. Núpsá ræður að framan,
en fyrir ofan merkigarður úr Núpsá og efri
Fálkhamar og merkigarður út Merkisund út
í Hurðarbaksárkrók. Þetta (er) Hreimsstaða-
land, en Hrjótarland er að framan, framanvert
úr Hrjótarvatni og upp fyrir utan Grendals-
hæðir, þaðan í Hölkná að austan, þá koma til
(= út að) Ánastaðalandamerki.
Gr.5
Það sem afréttargöngur áhrærir, þá sýnist rétt
að byrja grenjaleit í framanverðum Hraundal
og Kirkjutungum. Gangi búendur af fjórum
bæjum sem þar eru réttlínis niðurundan. Nl. frá
Hijót, Hreimstöðum, Ketilsstöðum og Tjarn-
arlandi, þessir komi saman að Hrjót. En að
utanverðu (á) Hraundal og Stangarárfjalli allt
að Sandá, búendur frá Ánastöðum, Rauðholti,
Hjaltastað, Svínafelli, Bóndastöðum, Stóra-
steinsvaði, Ekru, Dratthalastöðum, Hrollaugs-
stöðum úr frambæ; Þessir komi saman að
Ánastöðum og byrji leit að framanverðu.
Frá Sandá til ármóta, og þaðan sem Lamba-
múli ræður til Dyrfjalls, er til ætlað að gangi
búendur frá Sandbrekku, Hlaupandagerði,
Dölum, Kóreksstaðagerði, Kóreksstöðum,
Jórvík, Jórvíkurhjáleigu, útbæ Hrollaugsstaða
og Víðastöðum. Þessir komi saman að Sand-
brekku og byrji leit að utan.
I afréttarland Hrafnabjarga gangi búendur
frá Hrafnabjörgum, Klúku, Engilæk og Hóls-
bæjum, hver takmörk að eru frá áðumefndum
ármótum, sem Lambamúli ræður til Dyrfjalls,
(mun þýða á vatnaskilum) sem efstu vörp að
ofan og búfjárhagar að neðan allt til Knararár.
Þessir komi saman á Hrafnabjörgum og byrji
leit að utan.
í afréttarland undan Ósi er til ætlað að
gangi búendur frá Gagnstöð Ásgrímsstöðum,
Heyskálum og Ósi. Byrji leit að framan og
komi saman á Ósi.
Gr. 6
Skyldugir skulu leitarmenn að vera komnir á
dagmálum á hinn ákvarðaða stað, leita allan
dag til kvölds og vera jafn snemma til reiðu
fylgjandi dag, uns landið er gjörleitað, þar
sem það ei getur skeð á einum degi. Hverjir
58