Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2013, Side 93

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2013, Side 93
Rætur Stefáns Einarssonar í Breiðdal með föður sínum Magnúsi Gunnarssyni (frá Brekkuborg og síðar Skriðu), og þau hafi verið við Kleifarbrautina fyrir neðan Ytri Kleif, þegar þau mæta Margréti. Þrátt fyrir að vera komin vel yfír nírætt, sagðist Hlíf muna það svo vel, að hún sæi enn íyrir sér hversu stolt þessi kona var, þegar hún ljómaði öll og sagði þeim að nú væri hann Stefán sinn orðinn stúdent. Hlíf vissi náttúrlega ekki þá hvað það væri að vera stúdent, en miðað við gleði og ánægju Margrétar, hlyti það að vera eitt það besta sem hægt væri að verða. Menntavegurinn Sem bam hlaut Stefán kennslu af hendi móður sinnar, Margrétar, en fyrsti skólinn sem hann sótti var á Búðum í Fáskrúðsfirði og tók hann utanskólapróf upp í þriðja bekk Gagnfræða- skólans á Akureyri vorið 1913. Stefán var í þeim skóla 1913 til 1914 og síðan í Mennta- skólanum í Reykjavík þar sem hann tók stúd- entspróf árið 1917. Að loknu stúdentsprófi var Stefán eitt ár í heima í Breiðdal, en hóf svo haustið 1918 nám í íslenskum fræðum við heimspekideild Háskóla Islands og lauk þaðan prófi árið 1924. Lokaverkefnið var Hljóðfræði íslenskrar tungu á vomm dögum. Stefán hlaut svo utanfararstyrk Sáttmálasjóðs Háskóla íslands og fór til Finnlands til fram- haldandi náms í hljóðfræði árin 1924 til 1925 og lauk doktorsprófi frá Oslóarháskóla árið 1927. Starfsævi Likt og margir mjög svo hæfir Islendingar fann Stefán ekki vinnu við sitt hæfi á Islandi eftir að náminu lauk. Sigurður Nordal prófessor og kennari Stefáns hafði komið því svo fyrir að Stefán varð aðstoðarmaður Bandaríkja- mannsins Kemp Malone við rannsóknir hans á íslenskri hljóðfræði 1919. Malone sá svo til þess að þegar Stefán lauk doktorsnámi var honum boðið að koma að enskudeildinni við John Hopkins háskólann í Baltimore í Stefán og Aðalheiður hálfsystir hans. Maryland í Bandaríkjunum sem gestakennari. Mörgum þótti biturt að slíkur fræðimaður sem Stefán var þyrfti að taka sér vinnu utan landsteinanna þar sem Háskóli Islands væri enn ófullkominn og var íslensk hljóðfræði þá ekki meðal þeirra faga sem vom í boði við HI. Örlögin höguðu því þannig að Stefán starfaði alla sína starfsævi við John Hop- kins háskóla, þar sem hann varð prófessor, til starfsloka árið 1962. Starf Stefáns í John Hopkins var aðallega við enskudeild skólans. Stefán kenndi enska og germanska málfræði, einkum mið- og fomensku, gotnesku og dálitla íslensku. Hann starfaði óslitið við háskólann í hálfan ljórða áratug, 1927-1962. Eftir að Stefán lét af störfum fluttist hann heim til Islands og bjó í Reykjavík þar til að hann lést á Hrafnistu 9. apríl 1972 þrotinn að heilsu. Úr minningargrein Vilhjálms Þ. Gíslasonar (árið 1972) um Stefán: Dr. Stefán Einarsson var tvennt um ævina, og hvortveggja af lífi og sál og með heiðri og sóma. Hann var austfirskur sveitamaður og amerískur prófessor. Hann vann rannsóknir sínar og stundaði háskólakennslu sína vand- lega á amerískan nýtísku máta, en í honum var einnig mikið af safnara og grúskara á gamla og góða austfirska vísu. 91
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.