Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2013, Page 94
Múlaþing
Hjónabönd
Stefán var tvíkvæntur en eignaðist engin böm.
Fyrri kona hans frá 1925 var Margarethe
Schwarzenberg (1892-1953). Margarethe
var ættuð frá Pemau í Eistlandi og kynntust
þau Stefán þegar hann fór út til Finnlands
til náms. Hún var prestsdóttir og sagnfræð-
ingur að mennt. Hún starfaði þó aldrei sem
sagnfræðingur en fékkst nokkuð við kennslu
auk þess að sjá um heimili þeirra Stefáns og
aðstoða hann við fræðistörfín. Þau giftust árið
1925 og var hjónaband þeirra mjög ástúðlegt.
Hún náði fljótt góðu valdi á íslensku og var
elskuð af fjölskyldu Stefáns sem tók það upp
að kalla hana Margréti heima fyrir. Hún var
ekki góð til heilsu og leiddi hjartaslag hana
til dauða árið 1953. Dufteski hennar er grafið,
að hennar eigin ósk, í heimagrafreitnum á
Höskuldsstöðum.
Síðari kona Stefáns frá í desember 1954
var fngibjörg Jónheiður Amadóttir (1896-
1980) frá Narfakoti í Innri Njarðvík. Ingi-
björg var hjúkrunarkona og frænka Halldórs
Hermannssonar, vinar Stefáns, prófessors og
bókavarðar í Iþöku í Bandaríkjunum. Þegar
heilsu Halldórs tók að hraka kom Ingibjörg,
sem var ekkja, með syni sína til að hugsa
um hann. Stefán kynnist þannig Ingibjörgu
í október 1954 og giftist henni strax það ár.
Ingibjörg var mikil mannkostakona og reynd-
ist Stefáni mjög vel. Bókina Austfirzk skáld
og rithöfundar tileinkar Stefán Ingibjörgu
með orðunum: „Til Ingu minnar elskulegu
því án hennar hefði þessi bók ekki orðið til.“
Stefán og Margarethe í lautarferð.
Stefán og Ingibjörg
Ingibjörg var áður gift Birni Björnssyni
(1886-1939) gullsmið og teiknikennara og
átti með honum þrjú böm: Sigríði, Jón Hall-
grím og Ama. Hafa þau og aðrir afkomendur
Ingibjargar varðveitt persónulega muni og
gögn Stefáns og stutt við þá hugmynd Breið-
dælinga að koma upp minningarstofu um hann
á heimaslóðum sem nú er orðin að veruleika
í Breiðdalssetri.
Trúnaðarstörf
Stefáni vom falin fjölmörg trúnaðarstörf og
var hann heiðursfélagi í mörgum íslenskum
og amerískum fræðafélögum. Tvö rit hafa
verið gefin út Stefáni til heiðurs. Annað er rit
sem var tilbúið í handriti og afhent Stefáni í
kveðjuhófi í John Hopkins háskóla er hann
hætti, en kom síðan út árið 1968. Hitt er rit
sem kom út árið 1986, eða 14 ámm eftir
andlát hans og nefnist Studies in Germanic
Philology. Það segir mikið um það hve virtur
fræðimaður Stefán var að hann hlaut fyrstur,
ásamt Vilhjálmi Stefánssyni, inngöngu í eitt
virðulegasta fræðafélag Bandaríkjanna: The
American Philosophical Society. Hann var
einnig félagi í Vísindafélagi Islendinga frá
92