Strandapósturinn - 01.06.1992, Blaðsíða 83
Guðmundur Pétursson var fæddur á Melum 6. janúar 1853. Frá
unga aldri ólst hann upp hjá móðurbróður sínum, Guðmundi
Jónssyni í Krossnesi, og konu hans, Guðrúnu Sigmundsdóttur, er
reyndust honum sem bestu foreldrar. Lítið var þó um bóklega
dlsögn, og sagði Guðmundur sjálfur svo frá, að varla hafi hann
getað klórað nafnið sitt er hann var fermdur. Arferði var oft erfitt
um þessar rnundir, lífsbarátta hörð og allri orku til hennar varið.
En vel bætti Guðmundur síðar um það með eigin nárni og æfingu í
starfi, sem áfátt hafði verið um menntunarundirbúning á
bernskuárunum.
Þegar Guðmundur var 15 ára, lést fóstri hans, og var honum
það mikið harmsefni. En næsta vetur fékk hann, þótt ungur væri,
uppfylltan þann óskadraum sinn að verða háseti á hákarlaskipi.
Mun óhætt að segja, að hann hafi þá og hin næstu ár vaxið mjög að
þroska, áræði og stórhug. Nítján ára gamall lét hann smíða handa
sér góðan bát, þriggja manna far, og upp frá því þurfti hann ekki
að leita til annarra um farkost til fiskiróðra.
Árið 1875 kvæntist Guðmundur Elísabetu Þorkelsdóttur,
bónda í Ófeigsfirði, Þorkelssonar. Hóf hann þá þegar búskap í
Ófeigsfirði og bjó þar síðan fram í háa elli, eins og kunnugt er.
Þótt efni væru lítil í byrjun gerðist hann brátt mikill athafnamað-
ur. Harðbýlt er talið vera þar nyrst á Ströndum og tíðarfar löng-
um óhagstætt þeim, er landbúnað stunda. Ófeigsfjörður er að
vísu óvenjuleg kostajörð, þar er mikil dúntekja, selveiði og viðar-
reki. En úti fyrir er hinn mikli Vitaðsgjafi, sjórinn, sem hefir eða
hafði einkum fyrr á tíðum miklar nægtir að gefa, ef eftir var leitað
með harðfylgi. Eigi þurfti að brýna Guðmund til þeirrar sóknar.
Þegar á fyrsta búskaparári lét hann smíða hákarlaskipið „Ófeig",
stóran áttæring, er hann gerði síðan út og stýrði lengi og farsæl-
lega. Er „Ófeigur“ enn geymdur þar nyrðra* til minningar um
framkvæmdir og vinnubrögð horfins tíma. Tveimur árurn síðar
en Ófeigur hljóp af stokkunum, eignaðist Guðmundur nýjan
sexæring.
Búskapur Guðmundar í Ófeigsfirði var óvenju umfangsmikill,
* Ófeigur er núna á Byggðasafninu að Reykjaskóla.
81