Saga - 2014, Blaðsíða 101
erla hulda halldórsdóttir og sigrún pálsdóttir
Hugleiðing um bókina Fjarri hlýju
hjónasængur. Öðruvísi Íslandssaga
eftir Ingu Huld Hákonardóttur
Í ár eru liðin tuttugu og tvö ár síðan bók Ingu Huldar Hákonar dóttur,
Fjarri hlýju hjónasængur, kom út; fjörutíu ár síðan sjálf hugmyndin að
bókinni kviknaði fyrst í huga höfundar. Það var árið 1974 þegar Inga
Huld stundaði nám í sagnfræði við kaupmanna hafnarháskóla. Hún
var þá á fertugsaldri, loksins komin þangað sem hún hafði ætlað sér,
eftir að hafa „villst rétta leið“. Sá „villuvegur“ var í stuttu máli þessi:
eftir stúdentspróf hafði hún innritað sig í efnafræði við tækniháskól-
ann í Darmstadt til að finna leið að kjarna veraldarinnar en námið
endaði á þvælingi suður eftir meginlandi evrópu og aftur til baka,
alla leið heim til Íslands og inn á skrifstofu. Þar hugsaði ung Inga
Huld sitt ráð, batt að lokum sitt ráð og gekk inn í bóhemlíf Reykja -
víkur sem eiginkona ungs og upprennandi tónskálds, Leifs Þórarins -
sonar. Með Leifi hélt Inga Huld til New york árið 1959, heillaðist þar
af baráttu bandarískra blaða manna gegn víetnam stríðinu og hóf
heimkomin feril sinn sem blaðamaður á Sunnudagsblaði Tímans, sem
þá var undir ritstjórn Jóns Helgasonar. Jón smitaði hina 29 ára gömlu
þriggja barna móður af áhuga á örlögum fyrri kynslóða en hjá
honum tók Inga Huld líka viðtöl við menn eins og Jóhannes kjarval,
Þórberg Þórðarson og Jónas Svafár. Hún var á þeim tíma sannfærð
um að snilligáfa einstaklinga væri bundin við karlmenn og sagðist
síðar helst hafa rætt við konur væru þær ekkjur merkra manna. Hún
viðurkenndi meira að segja að hafa haldið að þær Málfríður einars -
dóttir og Halldóra B. Björnsson væru kærustur ritstjórans Jóns úr því
hann birti eftir þær ljóð í blaðinu.1
Saga LII:2 (2014), bls. 99–107.
1 Inga Huld Hákonardóttir, „Að villast rétta leið“, Íslenskir sagnfræðingar 2. bindi.
Viðhorf og rannsóknir (Reykjavík: Mál og mynd 2002), bls. 259–268.
Í TA R D Ó M U R
Saga haust 2014 .qxp_Saga haust 2004 - NOTA 17.5.2019 10:15 Page 99