Saga - 2014, Blaðsíða 162
Útgáfa. Tvær bækur hefur Sögufélag gefið út frá síðasta aðal fundi
og sú þriðja verður senn tilbúin. Fyrsta skal telja sögu Spari sjóðs
Reykjavíkur og nágrennis í 77 ár. Hana samdi Árni H. krist jáns son
sagnfræðingur. verkið var unnið að tilstuðlan SPRoN-sjóðsins ses.
og hófst síðla árs 2010. Bókin er 443 blaðsíður og ríkulega mynd-
skreytt. Í kynningu Sögufélags sagði að í bókinni væri saga spari -
sjóðsins rakin og ljósi varpað á samfélagið hverju sinni, með efna-
hagsmál í forgrunni. Byggt væri á mörgum heimildum sem ekki
hefðu verið nýttar áður, ekki aðeins sagt fá fjármálafyrirtæki heldur
líka fólkinu sem hefði unnið þar og frásögnin væri lífleg og spenn-
andi enda frá mörgu að segja. „verkið varpar nýju ljósi á fjármála -
sögu Íslands og mun vafalítið vekja umtal,“ sagði svo að síð ustu. Það
reyndust orð að sönnu. Snemma árs í fyrra birtist vonum seinna
skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um fall sparisjóða á Íslandi.
vaknaði óðara sá sterki grunur að skýrsluhöfundar hefðu nýtt sér
bók Árna án þess að geta heimildar. Spunnust af þessu deilur og
skoðanaskipti sem ekki sér fyrir endann á. vonir hljóta að standa til
þess að viðunandi lausn finnist að lokum.
Í ágúst á þessu ári gaf Sögufélag út ævisögu Winstons Churchills
eftir Jón Þ. Þór, 256 blaðsíðna langa, óbundna og látlausa. Ég átti
frumkvæði að gerð þessarar bókar og vildi vita hvort markaður
væri fyrir verk af þessu tagi, ætlað almenningi og ekki strang fræði -
lega frumrannsókn. viðtökur hafa verið góðar, verkið hefur selst vel
og vænta má enn betri sölu á jólavertíðinni. eflaust má spyrja hvort
það sé í verkahring Sögufélags að gefa út rit af þessu tagi en því
svara ég með því að segja það án efa okkar hlutverk að miðla sögu-
legum fróðleik. Þar að auki er á það reynandi að sjá hvort svona
bók, ódýr í vinnslu, geti skilað hagnaði sem þá megi nota til að gefa
út dýrari verk sem munu seint standa undir sér. Má þá minnast
þeirra orða Jóhanns Páls valdimarssonar útgefanda að íslenskir rit-
höfundar ættu að reisa Alistair Maclean styttu og minnast þess
þannig að metsala á bókum hans ár eftir ár gerði bókaforlaginu
Iðunni kleift að gefa út „æðri“ bókmenntir sem seldust í mun minni
upplögum.
eina bók enn gefur Sögufélag út á þessu ári og er hún allt annars
eðlis. Fyrir um ári kom Sigurjón Björnsson, prófessor emeritus, að
máli við mig og spurði hvort félaginu litist á að gefa út þýðingu
hans á öndvegisverki gríska sagnaritarans Þúkýdídesar um Pelops -
eyjarstríðið. Úr varð að við stjórnarmenn leituðum til valinkunnra
manna um að meta verk Sigurjóns og niðurstaðan var eins og vænta
af aðalfundi sögufélags 2014160
Saga haust 2014 .qxp_Saga haust 2004 - NOTA 17.5.2019 10:15 Page 160