Andvari - 01.01.2014, Page 104
102
HJALTI HUGASON
ANDVARI
spurning hvar móðurinni eða ímynd hennar sleppi og hvar Guð hafi tekið við.
Lengst af ævisögunnar virðist guðsmyndin þannig hafa verið kvenlæg og svo
virðist sem þrá Nonna eftir Sigríði móður sinni hafi tekið á sig trúarlegan blæ.
Spyrja má hvort líkja megi „móðurmissi“ hans við Paradísarmissi og brott-
för hans frá Islandi við útrekstur úr aldingarðinum. Þar blasir þá við nokkuð
önnur mynd en dregin er upp í bókinni Hvernig Nonni varð hamingjusamur.
Önnur skýring er þó allt eins trúleg. Það er að þessi trúarlega göfgun móður-
sambandsins hafi ekki átt sér stað við aðskilnaðinn frá móðurinni heldur við
dauða hennar 40 árum síðar og þá í sorgarvinnunni sem lagði grunninn að
Nonna-bókunum.52 Slík aðgreining er þó líklega of tæknileg. Fyrra og síðara
skref móðurmissisins hafa verið nátengd. Heilbrigður tregi Jóns Sveinssonar
fullþroska manns við fullkomlega eðlilegan og tímabæran dauða aldraðrar
móður hefur umhverfst í djúpa sorg er hann stóð endanlega frammi fyrir af-
leiðingunum af aðskilnaðinum í æsku. Þangað til var von um endurfundi og
að viðskilnaður hans við móðurina í æsku yrði þrátt fyrir allt tímanlegur en
ekki ævarandi. Loks mætti spyrja hvort göfgun Nonna á móður sinni, móður-
ímyndinni og móðursambandinu, meðal annars hlýðnisheits hans við hana
sem virðist hafa mótað hann ævilangt, hafi mótast af hugmyndum hans um
og tilfinningum til Maríu meyjar. Laust Sigríði frá Reykjahlíð og Maríu guðs-
móður ef til vill að einhverju leyti saman í huga hans? Það er spurning sem
lútherskur guðfræðingur ætti að láta liggja milli hluta.
Undir lokin, í ellinni virðist guðsmyndin síðan hafa tekið breytingum,
hvenær sem það svo gerðist. Þá er hún ekki lengur kvenlæg heldur karllæg.
„Vinurinn“, hinn nálægi, mildi, líknsami og kærleiksríki Jesús virðist kominn
í stað Móðurinnar en þó ekki einn. Svo virðist sem heilög þrenning hafi á
þessu skeiði verið ríkjandi þáttur í guðsmynd Nonna en þá einkum í mynd
þeirra Jesú, Maríu og Jósefs. Birtist þar þrá eftir hinni heilögu, sameinuðu og
samheldnu fjölskyldu? Var það fjölskyldan sem Nonni varð eitt sinn viðskila
við sem þar lá undir steini? - Trú, tilfinningar og tengsl verða seint greind í
sundur á nokkurn röklegan máta.
Lokaorð
Mörg okkar hrifust af babúskunni í æsku, rússnesku, digru sveitakerlingunni
með litríka sjalið. Hana var hægt að opna og flysja eins og lauk, draga fram
sífellt minni, grennri og yngri gerðir uns babúskan var orðin að barni.
Við lestur ævisögunnar Pater Jón Sveinsson - Nonni skaut babúskunni upp
í huga mér. Þar er hægt að nálgast stöðugt nýjan Nonna. Að vísu er byrjað
innst og endað yst, það er á Nonna gömlum. En hvenær er maðurinn annars
einlægastur, sannastur, mest hann sjálfur? Ef til vill er það í elli en ekki æsku.