Peningamál - 23.11.2022, Blaðsíða 13

Peningamál - 23.11.2022, Blaðsíða 13
PENINGAMÁL 2022 / 4 13 einnig til aukinnar eftirspurnar eftir íslenskum afurðum og stuðlaði að frekari verðhækkunum. Útflutningsverð á íslenskum sjávarafurðum í erlend- um gjaldmiðlum hækkaði um tæplega fjórðung milli ára á öðrum ársfjórðungi og var þá um fimmtungi hærra en að meðaltali árið 2019. Ólíkt því sem gert var ráð fyrir í ágústspá bankans og þvert á vísbendingar um að eftirspurn hafi gefið eftir á erlendum mörkuðum í sumar hækkaði útflutningsverðið áfram á þriðja ársfjórðungi. Er það meginástæða þess að nú er talið að það hækki um tæplega 20% á árinu í heild í stað 13% í ágústspánni. Á móti er spáð meiri verðlækkun á næsta ári í takt við lakari efnahagshorfur í helstu viðskiptalöndum og aukna óvissu í heimsbúskapnum. Skertar aflaheimildir í þorski og loðnu vega þó á móti og stuðla að minni verðlækkun en ella. Útlit fyrir meiri lækkun álverðs á næsta ári Heimsmarkaðsverð á áli hækkaði nær samfellt frá miðju ári 2020 og fram á fyrsta ársfjórðung í ár. Hækkunin stafaði m.a. af minni framleiðslu í Kína, aukinni eftirspurn í takt við alþjóðlegan efnahagsbata og aukinni óvissu um framboð á áli í kjölfar stríðsins í Úkraínu. Snarpur viðsnúningur varð hins vegar á álverði á öðrum fjórðungi í ár og lækkaði það enn frekar á þeim þriðja samhliða versnandi horfum í heimsbúskapnum. Í samræmi við ágúst spá bankans hélt útflutningsverð áls frá Íslandi hins vegar áfram að hækka á öðrum fjórðungi og var þá orðið ríflega 60% hærra en á sama fjórðungi í fyrra (mynd I-16). Verðið gaf þó eftir á þriðja ársfjórðungi og búist er við frekari lækkun á þeim fjórða. Spáð er að útflutn- ingsverð áls verði tæplega þriðjungi hærra að meðaltali í ár en í fyrra sem er heldur minni hækkun en spáð var í ágúst. Horfur á næsta ári hafa hins vegar versnað meira og er nú spáð tæplega 18% verðlækkun í stað 8%. Olíuverð hefur lækkað frá því í júní ... Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði mikið í aðdraganda og kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu snemma á þessu ári. Það fór hæst í tæplega 130 Bandaríkjadali á tunnu eftir innrásina en var um 112 Bandaríkjadalir á tunnu að með- altali á öðrum ársfjórðungi (mynd I-17). Það er um 60% hærra verð en á sama fjórðungi 2021. Hækkunin og mikl- ar verðsveiflur endurspegla aukna óvissu um olíuframboð vegna stríðsátakanna og refsiaðgerða Vesturlanda gegn Rússlandi, enda er það annar stærsti olíuútflytjandi heims. Olíuverð tók hins vegar að lækka á ný um mitt þetta ár í takt við auknar áhyggjur af efnahagshorfum í heiminum og býst Alþjóðaorkumálastofnunin (IEA) nú við minni aukningu olíueftirspurnar en áður var spáð. Á móti vegur hins vegar minni olíuframleiðsla OPEC-ríkja og nokkurra annarra olíuframleiðsluríkja sem tilkynnt var Verð á olíu og jarðgasi¹ 1. janúar 2019 - 18. nóvember 2022 1. Skyggða svæðið sýnir tímabilið frá upphafi stríðsátaka í Úkraínu. Heimild: Refinitiv Datastream. USD á tunnu Mynd I-17 Verð á hráolíu á heimsmarkaði (Brent, v. ás) Heildsöluverð á jarðgasi í Evrópu (h. ás) 0 20 40 60 80 100 120 140 0 70 140 210 280 350 420 490 2022202120202019 EUR á megavattstund
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Peningamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.