Peningamál - 23.11.2022, Síða 41

Peningamál - 23.11.2022, Síða 41
PENINGAMÁL 2022 / 4 41 við að verðbólga verði meiri en 5% á næstu fimm árum hefur hækkað töluvert á þessu ári (mynd V-12). Aukinn verðbólguótti virðist því vera farinn að grafa um sig. Verðbólguhorfur Verðbólguhorfur til skamms tíma hafa batnað ... Verðbólga á þriðja ársfjórðungi var minni en gert var ráð fyrir í ágústspánni en þá var búist við að hún myndi ná hámarki undir lok þessa árs. Skýringuna á frávikinu má m.a. rekja til þess að það tók að hægja mun hrað- ar á umsvifum á húsnæðismarkaði en búist var við. Húsnæðisverð gaf því hraðar eftir en einnig lækkuðu eldsneytisverð og flugfargjöld meira sl. haust en vænst var. Nærhorfur hafa því batnað vegna betri upphafs- stöðu í byrjun spátímans. Spáð er að verðbólga verði 9,4% á fjórða ársfjórðungi og 8,5% á fyrsta fjórðungi næsta árs sem er 1,2 prósentum minna en spáð var í ágúst. Samkvæmt spánni verður verðbólga að meðaltali 6% á næsta ári og hefur þá minnkað úr 8,3% í ár. ... en áfram er búist við að verðbólga minnki hægt … Áfram er búist við að verðbólga hjaðni hægt og hafa horfur til lengri tíma lítið breyst frá því í ágúst. Verðbólguhorfur í viðskiptalöndunum eru lakari en áður var gert ráð fyrir og því útlit fyrir að innflutt verðbólga aukist áfram. Þá er búist við að spennan sem myndaðist í þjóðarbúskapnum í ár minnki heldur hægar en spáð var í ágúst. Einnig er gert ráð fyrir lægra gengi krónunnar á spátímanum. Samkvæmt grunnspánni verður verðbólga komin niður fyrir 4% á fyrri hluta árs 2024 og verður við markmið í lok spátímans skilyrt á vaxtaferil spárinnar. … og mikil óvissa er til staðar Eins og fjallað er um í rammagrein 1 eru verðbólgu- horfur háðar framvindu ólíkra óvissuþátta. Það skiptir miklu hversu langvarandi stríðsátökin í Úkraínu verða og hvernig alþjóðlegt olíu- og hrávöruverð þróast á næst- unni. Niðurstaða kjarasamningsviðræðna getur jafnframt haft mikil áhrif á verðbólguþróun. Þá mun verðbólga að hluta ráðast af því hvort áfram dragi úr umsvifum á hús- næðismarkaði og því hvernig framboð og verð húsnæðis þróast. Eins og áður er því talið að meiri hætta sé á að verðbólga á næstunni sé vanmetin í grunnspánni en að hún sé ofmetin. Taldar eru helmingslíkur á að verðbólga verði á bilinu 3¼-5¾% að ári liðnu og á bilinu 2½-5% eftir tvö ár (mynd V-13). Hlutfall heimila og fyrirtækja sem væntir meira en 5% verðbólgu á næstu 5 árum Heimildir: Gallup, Seðlabanki Íslands. Milli 5 og 8% Milli 8 og 10% Hlutfall (%) Mynd V-12 Yfir 10% 0 10 20 30 40 50 60 70 80 Sept. 2022 Júní 2022 Mars 2021 2018- 2021 Sept. 2022 Mars 2021 2018- 2021 Heimili Fyrirtæki Júní 2022 Verðbólguspá og óvissumat 1. ársfj. 2016 - 4. ársfj. 2025 Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands. PM 2022/4 PM 2022/3 Verðbólgumarkmið 50% líkindabil 75% líkindabil 90% líkindabil Breyting frá fyrra ári (%) Mynd V-13 0 2 4 6 8 10 12 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025

x

Peningamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.