Peningamál - 23.11.2022, Síða 44

Peningamál - 23.11.2022, Síða 44
PENINGAMÁL 2022 / 4 44 Til að kanna möguleg áhrif þessa er notast við DYNIMO-líkan Seðlabankans. Gert er ráð fyrir að nafnlaun hækki liðlega 5 prósentum meira á næsta ári í þeirri viðleitni að endurheimta sambærilegt raunlaunastig og var í upphafi ársins, áður en verð bólgan tók að grafa undan kaupmætti (mynd 4a). Það felur í sér að laun hækka um 11% milli ársmeðaltala á næsta ári í stað um 6% í grunnspánni og samtals um tæplega 24% á næstu þremur árum í stað 18% sam kvæmt grunnspánni. Jaðar kostnaður fyrirtækja hækkar því töluvert meira en í grunn spánni og þau bregðast bæði við með því að ganga á hagn aðarhlutdeild sína og hagræða í rekstri, m.a. með því að stytta vinnutíma starfsfólks eða með uppsögnum. Það dugar þó ekki til samkvæmt líkaninu og því bregðast þau einnig við með því að hækka afurðaverð sitt. Eins og sést á mynd 4b fjölgar heildarvinnustundum um 2½ prósentu minna á næsta ári en samkvæmt grunn- spánni og samtals eru þær 3% færri í lok spátímans. Lakari atvinnu horfur vega á móti meiri hækkun nafnlauna og við bætast neikvæð áhrif hærri vaxta og aukinnar verðbólgu (sjá hér á eftir). Einkaneysla vex því hægar á öllum spátímanum og er ¾% minni en í grunnspánni í lok hans (mynd 4c). Hærri vextir hægja einnig á fjármunamyndun og þrýsta upp gengi Fráviksdæmi: Kjarasamningar fela í sér meiri launahækkanir en í grunnspá Heimild: Seðlabanki Íslands. Frávik frá grunnspá (prósentur) Mynd 4 Mynd 4a Nafnlaun Mynd 4b Heildarvinnustundir Mynd 4c Einkaneysla -1 0 1 2 3 4 5 6 202520242023 Frávik frá grunnspá (prósentur) -3,0 -2,5 -2,0 -1,5 -1,0 -0,5 0,0 0,5 1,0 202520242023 Frávik frá grunnspá (prósentur) -0,3 -0,2 -0,1 0,0 202520242023 Frávik frá grunnspá (prósentur) Mynd 4d Hagvöxtur Mynd 4e Verðbólga Mynd 4f Meginvextir -2,0 -1,5 -1,0 -0,5 0,0 0,5 1,0 202520242023 Frávik frá grunnspá (prósentur) 0,0 0,2 0,4 0,6 0,8 1,0 202520242023 Frávik frá grunnspá (prósentur) 0,0 0,2 0,4 0,6 0,8 1,0 1,2 202520242023

x

Peningamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.