Peningamál - 23.11.2022, Page 60

Peningamál - 23.11.2022, Page 60
PENINGAMÁL 2022 / 4 60 Breytingar á tekjuhlið fyrir árið 2023 Tekjur ríkissjóðs samkvæmt frumvarpinu á næsta ári verða 1.117 ma.kr. og eru nánast óbreyttar frá fjármálaáætluninni. Nokkrar breytingar eru þó á einstaka undirliðum en þær vega að mestu upp hvor á móti annarri. Stærsta breytingin er í áætluðum veltusköttum sem eru 4,6 ma.kr. meiri í frumvarp- inu en í fjármálaáætlun á meðan tekjuskattar munu skila 3,2 ma.kr. minni tekjum. Eins og sést á mynd 1 munu tekjur á næsta ári aukast um nærri 87 ma.kr. frá áætluðum tekjum árins í ár. Bróðurpart aukningarinnar má rekja til aukinna efnahagsumsvifa og áhrifum á skatttekjur ríkissjóðs. Breytingar á gjaldahlið fyrir árið 2023 Á næsta ári hækka útgjöld um tæpa 68 ma.kr. frá fjárlögum 2022 og verða 1.206 ma.kr. Til hækkunar koma áhrif af launa- og verðlagsbótum og bundin útgjöld, m.a. vegna fjölgunar öryrkja og aldraðra og vaxtakostnaðar, til viðbótar við aukið svigrúm vegna nýrra verkefna. Tímabundin framlög, einkum vegna kórónuveirufaraldursins, falla hins vegar niður auk þess sem aðhaldsmarkmiðum er ætlað að draga úr útgjöldum. Miklar breytingar á efnahagsþróuninni hafa verið á árinu 2022 sem hafa áhrif á útgjöld ríkissjóðs á árinu. Þannig er áætlað að útgjöld ársins verði 34 ma.kr. meiri en fjárlög ársins kváðu á um en þar munar mestu um vaxtagjöld. Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu aukast útgjöld um tæpa 34 ma.kr. á næsta ári frá áætluðum heildargjöldum árið 2022 en eins og mynd 2 sýnir þá koma minni vaxtagjöld að hluta á móti auknum rekstrargjöldum á árinu. Minni halli í ár en búist var við í fjármálaáætlun Í fjármálaáætlun sem samþykkt var sl. sumar var áætlað að afkoma ríkissjóðs yrði neikvæð um tæplega 158 ma.kr. í ár en í uppfærðri áætlun fyrir árið er gert ráð fyrir 142 ma.kr. halla. Munurinn skýrist af því að áætlað er að skatttekjur og arðgreiðslur verði meiri á árinu. Á móti þessu vegur að vaxtagjöld og launakostnaður eru meiri í nýrri áætlun en að saman lögðu verður halli á frumjöfnuði rúmum 25 ma.kr. minni en í fjármálaáætlun og heildarjöfnuður tæpum 16 ma.kr. minni. Halli ríkissjóðs minni en viðmið fjármálastefnunnar Tekjujöfnuður fjárlagafrumvarpsins fyrir árið 2023 er nei- kvæður um 89 ma.kr. sem er 6,5 ma.kr. meiri halli en áætlað var í fjármálaáætlun í sumar. Líkt og fyrir árið 2022 má helst rekja breytinguna til hærri vaxtagjalda og launakostnaðar. Líkt og á síðustu árum vegur vaxtajöfnuður þungt í afkomu ríkissjóðs en hann er neikvæður um 63,6 ma.kr. í frumvarpinu. Halli á frumjöfnuði verður um 25,4 ma.kr. á Breyting tekna frá áætlun 2022 Heimild: Fjárlagafrumvarp ársins 2023, fjármála- og efnahagsráðuneytið. Ma.kr. Mynd 1 980 1.000 1.020 1.040 1.060 1.080 1.100 1.120 1.140 Heildar- tekjur 2023 AnnaðEigna- tekjur Trygg.- gjöld Áhrif skatt- stofna Skatta- breyt. Áætlaðar heildar- tekjur 2022 1.030,6 23,9 57,1 8,8 -8,2 5,1 1.117,2 Breyting útgjalda fjárlaga frá áætlun 2022 Heimild: Fjárlagafrumvarp ársins 2023. Ma.kr. Mynd 2 1.150 1.160 1.170 1.180 1.190 1.200 1.210 Heildar- gjöld fjárlög 2023 Önnur rekstrargj., m.a. vegna tilfærslna VaxtagjöldFjárfestingLaun og kaup á vöru og þjónustu Áætluð heildar- úgjöld 2022 1.172 27,0 0,7 -15,4 21,6 1.206

x

Peningamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.