Peningamál - 23.11.2022, Qupperneq 63

Peningamál - 23.11.2022, Qupperneq 63
PENINGAMÁL 2022 / 4 63 hægt að bólusetja heimsbyggðina og hversu áhrifarík bólu- efni yrðu í að stemma stigu við útbreiðslu veirunnar. Eftir því sem leið á urðu enda miklar breytingar á hagvaxtarhorfum sem endurspegluðu að stærstum hluta gang faraldursins og ýmist þess árangurs sem vannst eða þess bakslags sem varð í baráttunni við hann á hverjum tíma. Fyrsta spá bankans um efnahagshorfur fyrir árið 2021 eftir að farsóttin skall á var birt í maíhefti Peningamála árið 2020. Þær einstöku aðstæður sem þá voru uppi og sú óvissa sem ríkti gerðu alla spágerð með eindæmum erfiða og fá fordæmi voru um viðlíka atburði sem hægt var að byggja á. Forsendur spárinnar voru að faraldurinn næði hámarki á öðrum fjórðungi ársins 2020 og að efnahagsumsvif myndu í kjölfarið smám saman færast í eðlilegt horf. Eftir því sem leið á árið 2020 varð þó ljóst að lengri tíma tæki að vinna bug á farsóttinni og að áhrifa hennar myndi gæta í meiri mæli á árinu 2021 en í fyrstu var talið. Raunin varð sú að áfram var mikill þungi í farsóttinni hér á landi á árinu 2021 en sóttvarnaráðstafanir voru aftur á móti minni en árið áður, sér í lagi á seinni hluta ársins. Bólusetning varð almennari eftir því sem leið á árið og að auki gekk fyrirtækjum og heimil- um betur að aðlaga starfsemi sína og athafnir að breyttum aðstæðum. Þegar komið var fram á árið 2021 gætti því auk- innar bjartsýni í spám bankans. Fyrstu spár um útflutning reyndust of bjartsýnar og lituðu hagvaxtarspár fyrir árið 2021 Þegar farsóttin kom upp snemma árs 2020 var ljóst að áhrif hennar á vilja og getu fólks til ferðalaga yrðu veruleg og að búast mætti við mikilli fækkun ferðamanna hingað til lands. Í spá Peningamála í maí árið 2020 var spáð að komum þeirra myndi fækka um 80% á árinu 2020 en þar sem búist var við að farsóttinni yrði lokið þegar kæmi fram á árið 2021 myndi ferðamönnum fjölga hratt á ný á því ári. Þó yrðu þeir áfram helmingi færri en árið 2019. Horfur um stórfellda fækkun ferðamanna vógu því þungt í spánni um að landsframleiðsla yrði 6,1% lægri árið 2021 en spáð hafði verið í febrúar. Samt sem áður var gert ráð fyrir að hún myndi aukast um 4,8% milli ára samanborið við 2,4% í febrúarspánni og skýrist það af grunnáhrifum af samdrætti ársins 2020 (mynd 1). Þrátt fyrir þá miklu óvissu sem var uppi á þessum tíma reyndist þessi fyrsta spá bankans eftir að farsóttin kom upp í ágætu samræmi við nýjasta mat Hagstofunnar um að hagvöxtur ársins 2021 hafi verið 4,4%. Næstu spár bankans áttu þó eftir að reynast of svartsýnar. Þegar spá bankans var uppfærð í ágúst árið 2020 (Peningamál 2020/3) hafði farsóttin verið í rénun yfir sumarið og gaf það tilefni til að ætla að samdráttur ársins 2020 yrði minni en ella. Þó að litlar breytingar væru á horfum fyrir árið Hagvaxtarspár Peningamála fyrir árið 20211 1. Spár PM 2020/2-2020/4 og 2021/1-2021/4 fyrir hagvöxt ársins 2021 ásamt nýjasta mati Hagstofu Íslands. Myndin sýnir einnig spá PM 2022/1 sem er síðasta spá bankans fyrir fyrstu áætlun Hagstofunnar á hagvexti ársins 2021. Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands. Breyting frá fyrra ári (%) Mynd 1 0 1 2 3 4 5 6 Nýjast 22/1 21/4 21/3 21/2 21/1 20/4 20/3 20/2
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Peningamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.