Peningamál - 23.11.2022, Page 68

Peningamál - 23.11.2022, Page 68
PENINGAMÁL 2022 / 4 68 Hrávöruverð hafði að auki lækkað mikið í kjölfar þess að faraldurinn skall á og gerðu alþjóðlegar spár ráð fyrir áfram- haldandi lágu matvælaverði á alþjóðamörkuðum og lítilli verðbólgu í helstu viðskiptalöndum. Verðlækkanir á alþjóða- mörkuðum áttu þó eftir að reynast skammlífar. Í nóvember 2020 tók heimsmarkaðsverð á hráolíu að hækka á ný eftir að jákvæðar fregnir bárust af árangri við þróun bólefna gegn farsóttinni. Við það urðu væntingar um að olíueftirspurn tæki hraðar við sér en áður var talið og í ofanálag dró úr framboði frá OPEC-ríkjum og nokkrum öðrum olíuframleiðendum. Þessar hækkanir voru töluvert umfram það sem framvirkt verð og alþjóðlegar spár gáfu til kynna við útgáfu nóvemberheftis Peningamála. Það sama var uppi á teningnum við spár bankans á árinu 2021 (mynd 10). Þótt framvirkt verð benti til þess í hvert skipti að olíuverð myndi fara lækkandi reyndist það sífellt hærra við næstu spá. Þá voru verðhækkanir á öðrum hrávörum einnig umfram spár, ýmist vegna aukinnar eftirspurnar, framboðshnökra eða hækkunar á alþjóðlegum flutningskostnaði. Innflutningsverð hækkaði þannig ítrekað umfram spár er á leið og skýrir það að stórum hluta hvers vegna verðbólgu á árinu 2021 var kerfisbundið vanspáð (mynd 11). Til viðbótar þýddi hraðari viðsnúningur í innlendum efnahagsumsvifum undir lok ársins að innlendur verðbólgu- þrýstingur reyndist meiri en gert hafði verið ráð fyrir. Þessi viðsnúningur sést m.a. í því að atvinnuleysi varð minna á árinu 2021 en spáð var framan af og að slakinn í þjóðarbúinu reyndist nokkru minni (mynd 11). Hraðari viðsnúningur efnahagsumsvifa leiddi þó til þess að gengi krónunnar hélst hærra en fyrst var spáð og dró það úr áhrifum hækkandi innflutningsverðs. Breyttar horfur um gengi krónunnar árið 2021 virðast einnig hafa litast af Spár Peningamála um olíu- og hrávöruverð árið 20211 1. Spár 2020/2-2020/4 og 2021/1-2021/4 fyrir alþjóðlegt olíu- og hrávöruverð ásamt endanlegri niðurstöðu ársins. Heimildir: Alþjóðabankinn, Refinitiv Datastream, Seðlabanki Íslands. Breyting frá fyrra ári (%) Mynd 10 0 10 20 30 40 50 60 70 Nýjast 21/4 21/3 21/2 21/1 20/4 20/3 20/2 Olíuverð Breyting frá fyrra ári (%) 0 5 10 15 20 25 30 35 Nýjast 21/4 21/3 21/2 21/1 20/4 20/3 20/2 Hrávöruverð Spár Peningamála um áhrifaþætti verðbólgu árið 20211 1. Spár 2020/2-2020/4 og 2021/1-2021/4 fyrir valdar þjóðhagsstærðir árið 2021 ásamt endanlegri niðurstöðu ársins. Myndin sýnir atvinnuleysi samkvæmt vinnumarkaðskönnun Hagstofu Íslands. Gengi krónunnar er miðað við viðskiptavegna gengisvísitölu. Innflutningsverð er í erlendum gjaldmiðlum (miðað við viðskiptavegna gengisvísitölu). Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands. % af mannafla Mynd 11 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Atvinnuleysi Framleiðsluspenna Breyting frá fyrra ári (%) Gengi krónunnar Innflutningsverð 20 /2 20 /3 20 /4 21 /1 21 /2 N ýj as t % af framleiðslugetu Breyting frá fyrra ári (%) -2,5 -2,0 -1,5 -1,0 -0,5 0,0 -6 -4 -2 0 2 4 0 1 2 3 4 5 6 7 8 21 /3 21 /4 20 /2 20 /3 20 /4 21 /1 21 /2 N ýj as t 21 /3 21 /4 20 /2 20 /3 20 /4 21 /1 21 /2 N ýj as t 21 /3 21 /4 20 /2 20 /3 20 /4 21 /1 21 /2 N ýj as t 21 /3 21 /4

x

Peningamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.