Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2013, Side 31

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2013, Side 31
 tilviki fjármögnunarleigusamninga. Þá var einnig vísað til þeirrar staðreyndar að bókhalds- og skattaleg meðferð fjármögnunarleigu- samninga og kaupleigusamninga væri mismunandi.46 b) Dómar Hæstaréttar um eðli fjármögnunarleigusamninga Þegar þessi grein er rituð hafa tveir dómar fallið í Hæstarétti þar sem ágreiningur málsaðila laut að því hvort tilteknir fjármögnunar- leigusamningar væru í eðli sínu láns- eða leigusamningar. Dómur í fyrra málinu var kveðinn upp 20. október 2011 í máli nr. 282/2011 (Kraftvélar) en í hinu síðara var dómur kveðinn upp hinn 24. maí 2012 í máli nr. 652/2011 (Smákranar II), en rétt er að taka fram að höf- undur þessarar greinar flutti síðarnefnda málið sem síðasta prófmál til öflunar réttinda til málflutnings fyrir Hæstarétti. Í báðum mál- unum var Hæstiréttur skipaður fimm hæstaréttardómurum. Hrd. 282/2011 (Kraftvélar). Hinn 16. ágúst 2007 gerðu G og K með sér samn- ing um fjármögnun á vinnuvél, svokallaðri búkollu. Í málinu greindi aðila einkum á um hvort um væri að ræða lánssamning eða leigusamning. Meiri- hluti Hæstaréttar (4 af 5 dómurum) taldi að þegar ákvæði sérstakra og al- mennra skilmála samningsins væru virt í heild yrði að telja að samningur- inn væri í eðli sínu lánssamningur. Á það var bent í forsendum meirihlut- ans að ákvæði hinna sérstöku skilmála í samningi aðila væru ákaflega ruglingsleg og óskýr. Þannig væri að finna í skilmálunum ýmis hugtök sem vandséð væri hvaða hlutverki hefðu að gegna í leigusamningi, svo sem „samningsfjárhæð“, „gengi á útborgunardegi“ o.fl. Þannig taldi Hæsti- réttur ákvæði hinna sérstöku skilmála samrýmast því mun betur að samn- ingurinn væri í raun um lán en ekki leigu á tiltekinni vél. Í umfjöllun Hæstaréttar um hina almennu skilmála samningsins er tekið fram að þeir hafi átt að gilda jafnt um kaupleigu- og fjármögnunarleigu nema annað hafi verið tekið fram. Þá kemur fram að efni almennu skilmálanna væri fyrst og fremst sniðið að kaupleigusamningum og samrýmdist því í mörg- um atriðum illa að um fjármögnunarleigusamning gæti verið að ræða. Þessu til stuðnings vísaði Hæstiréttur m.a. til þess að óumdeilt hafi verið að K hafi haft frumkvæði að kaupum á vinnuvél þeirri sem samningurinn varðaði og yrði ekki séð að G hafi komið að kaupunum að öðru leyti en því að hann hafi verið skráður eigandi til tryggingar efndum samningsins. Þá var á það bent að glöggt mætti ráða af skilmálunum að einstakar greiðslur samkvæmt samningnum hafi borið vexti en slíkt samrýmdist ekki eðli leigusamninga. Einnig var bent á að leigutaki bæri ábyrgð á öllu tjóni og bilunum á hinu leigða og hafi skylda hans til greiðslu leigu ekki átt að falla 46 Í raun leiddi þetta til þess að þeir sem höfðu með höndum skattskyldan rekstur not- færðu sér fjármögnunarleigu en þeir sem ekki höfðu skattskyldan rekstur með höndum nýttu sér kaupleigu.  Í fyrri dómum Hæstaréttar þar sem fjármögnunarleigusamningar hafa komið við sögu og kveðnir voru upp fyrir gildistöku vxl. var eðli samninganna ekki til umfjöllunar, sbr. t.d. Hrd. 1996, bls. 1422 (mál nr. 150/1995) og Hrd. 1997, bls. 977 (mál nr. 224/1996).
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.