Tímarit lögfræðinga - 01.04.2013, Síða 37
unarleigusamnings sem einkahlutafélag gerði við SP-Fjármögnun,
nú Landsbankann eftir samruna í nóvember 2011.52
Þó að þeir samningsskilmálar sem í notkun voru hjá þeim ís-
lensku eignaleigufyrirtækjum, sem buðu upp á fjármögnunarleigu,
séu með mismunandi framsetningu og orðalagi þá eiga þeir það
hins vegar sameiginlegt að í engu tilviki er kveðið sérstaklega á um
kauprétt leigutaka að samningsandlagi í lok samningstíma. Það er
því ljóst að í þeim dómsmálum, sem framundan eru, og deiluefnið
lýtur að eðli fjármögnunarleigusamninga, þurfa leigutakar, gegn
andmælum eignaleigufyrirtækis, að sanna að samið hafi verið um
yfirfærslu eignaréttar í lok samningstíma. Þunginn í málatilbúnaði
leigutaka mun því fyrirsjáanlega lúta að því að sanna tilvist slíks
munnlegs samkomulags.
Ljóst er af framangreindum dómum Hæstaréttar um fjármögn-
unarleigusamninga, einkum máli nr. 652/2011, að töluvert miklar
kröfur eru gerðar til sönnunar í þessum efnum sem kann þá mögu-
lega að leiða til þess að leigutakar samkvæmt fjármögnunarleigu-
samningum, sem innihalda efnislega sams konar skilmála, kunna
að vera í mismunandi stöðu, t.d. eftir umfangi viðskipta við við-
komandi eignaleigufyrirtæki og þeim gögnum sem gengið hafa
milli samningsaðila í tengslum við og eftir samningsgerð. Leiða má
að því líkum að réttarstaða stærri lögaðila sé almennt sterkari en
hinna smærri enda meiri líkur til þess að sönnun um venju í við-
skiptum aðila lánist. Þá finnast einnig dæmi þess að eignaleigufyrir-
tæki hafi sjálf haft frumkvæði að viðskiptum við stærri lögaðila,
hugsanlega með tilboðum um gerð fjármögnunarleigusamninga.
Slík tilboð kunna mögulega að innihalda ákvæði um lokagjald í lok
samningstíma, sbr. t.d. mál nr. 282/2011.
Þá er ekki loku fyrir það skotið að samningsandlagið sjálft kunni
að skipta máli þegar metið er hvort sannað þyki, gegn andmælum
gagnaðila, að samið hafi verið sérstaklega fyrir samningsgerð um
yfirfærslu eignaréttar að samningsandlagi í lok samningstíma. Það
má að minnsta kosti færa fyrir því rök að andlag samnings geti skipt
máli að þessu leyti enda halda fasteignir t.d. verðgildi sínu lengur
en lausafjármunir og líkur til þess að sá sem fjármagnað hefur fast-
eignakaup með fjármögnunarleigu hafi hugsað sér að eignast samn-
ingsandlagið í lok samningstíma.
52 Einn þáttur málsins hefur þegar komið til kasta Hæstaréttar. Með dómi réttarins 24. jan-
úar 2013 í máli nr. 10/2013 (Flugastraumi) hafnaði Hæstiréttur, eins og áður hefur verið rakið,
kröfu bankans um að leitað yrði ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins við tilteknum spurn-
ingum með vísan til þess að ekki væri nauðsynlegt við úrlausn málsins að leita svara við
spurningunum.