Úrval - 01.12.1949, Síða 8
6
ÚRVAL
aðist á þriðja farrými, bjó á
ódýrum hótelum og sparaði
hvern skilding. Árið 1924 hafði
hann aflað nægilegs fjár til að
hefja störf sín aftur. Helene
var enn of veik til að fara með
honum, en hún ætlaði að koma
á eftir honum strax og hún gæti.
Á f jarvistarárunum hafði hit-
inn og hvítu maurarnir étið upp
allt, sem Schweitzer hafði byggt
í Lambaréné. Hann varð að
hefja starf sitt frá grunni að
nýju. Á morgnana var hann
læknir, en seinni hluta dagsins
smiður. Og hann varð að reyna
að gleyma einverunni og lamandi
hitanum. En aftur komu inn-
fæddir menn honum til hjálpar
við endurbygginguna, og ka-
þólsk trúboðsstöð lengra upp
með ánni sendi honum smið til
aðstoðar.
Von bráðar gat Schweitzer
skrifað stuðningsmönnum sín-
um í Evrópu, að dánartalan með-
al frumbyggjanna færi lækk-
andi. Nokkru síðar gat hann
sagt þeim, að útbreiðsla holds-
veikinnar hefði verið heft; lík-
þráir væru nú um 50.000, aðeins
einn af 60! „Sendið mér lyf,
sendið mér mat, í guðanna bæn-
um!“ var sífellt viðkvæði í bréf-
um hans.
Loks, eftir mörg, löng ár, gat
Helene komið suður til manns
síns. Framtíðarhorfur stöðvar-
innar voru þá bjartar. Byggð-
ur hafði verið spítali með 300
sjúkrarúmum, lyfjabúð, fuil-
kominni skurðstofu og rann-
sóknarstofu, fæðingardeild og
barnadeild.
Nýjustu endurbæturnar voru
raflagning (læknirinn lagði
sjálfur leiðslurnar) og geðsjúk-
dómadeild. Að skipun galdra-
læknanna hafði vitskertum
mönnum hingað til verið drekkt
í ánni. Schweitzer hóf lækninga-
tilraunir á þeim og suma tókst
að lækna.
En svo brauzt styrjöld aftur
út í Evrópu, og setti þau í mik-
inn vanda. Schweitzer leit spyrj-
andi á konu sína, og eins og allt-
af hafði Helene svar á reiðum
höndum: „Við megum ekki
leggja á flótta. Fólkið hérna set-
ur allt sitt traust á okkur. Sam-
vizku okkar vegna verðum við
að vera kyrr.“
í þetta skipti fengu þau að
vera í friði. Samband þeirra við
Evrópu rofnaði, en þá brugðu
vinir þeirra í Bandaríkjunum
við, og á stríðsárunum sáu þeir
þeim fyrir öllum nauðsynjum
til reksturs stöðvarinnar.