Úrval - 01.12.1949, Blaðsíða 25
LEIKIP. NÆTURINNAR
23
— Lokaðu augunum. mamma,
segir Áki og leikur síðasta leik
da,gsins.
Og meðan móðirin er með lok-
um augun, laumar Áki varlega
krónupeningunum fjórum í
framrétta hönd hennar, og svo
híeypur hann niður götuna á
fótum, sem renna á hellunum,
því að þeir eru svo hræddir. Köll
móðurinnar elta hann meðfram
húsveggjunum, en þau stöðva
hann ekki. Þvert á móti, þau
knýja hann til að hlaupa enn
hraðar.
CC ★ CS3
Ihugunarefni.
Konan: „Hefurðu nokkum tíma hugsað um, hvað þú mundir
gera, ef þú hefðir tekjur Rockefellers ?“
Maðurinn: ,,Nei, en ég hef oft hugsað um, hvað hann mundi
g-era, ef hann hefði minar tekjur.“
— Woodmen of the World
cc + cc
Kjarngóð sósa.
Á styrjaldarárunum var það algengt, að Lundúnabúar fengju
sendingar frá ættingjum og kunningjum í fjarlægum heimsálf-
um, því að skortur var á mörgu heima i Englandi. Kona, sem
átti því láni að fagna að eiga tengdaforeldra í Ástralíu, segir
eftirfarandi sögu í ensku blaði:
„Tengdaforeldrar minir sendu mér iðulega gjafapakka, og þá
helzt einhver matvæli, þvi að þeim var kunnugt um, að matar-
æði okkar var næsta fábreytt. Kenndi oft margra grasa í þess-
um matarpökkum, og var stundum erfiðleikum bundið fyrir
okkur að vita, hvernig matreiða skyldi sumt af þvi. Einu sinni
sem oftar fengum við pakka og var í honum baukur með grá-
brúnu dufti í, sem ég bar ekki kennsl á, og ekkert bréf fylgdi
með til skýringar. Eftir miklar vangaveltur komumst við að
þeirri niðurstöðu, að þetta mundi vera einskonar sósukraftur, og
notuðum við það þannig.
En okkru brá heldur i brún, þegar bréf barst frá tengdaföður
mínum skömmu seinna, þar sem hann tjáir okkur þau sorgar-
tíðindi, að tengdamóðir mín hafi dáið skyndilega, og að hann
hafi látið brenna líkið og 'sent okkur heim öskuná í lokuðum
bauk . . .“