Úrval - 01.12.1949, Síða 29
LENGRA LlF' I FULLU FJÖRX
27
munurinn á býflugnadrottningu
og vinnudýri er sá, að þau nær-
ast á ólíkri fæðu frá því þau
koma úr egginu. Eggjum, sem
eiga að verða drottningar, er að
vísu verpt í sérstaka drottn-
ingaklefa í býkúpunni en ef tek-
ið er egg úr vinnudýraklefa og
látið í drottningarklefa, og dýr-
ið sem úr því kemur þannig alið
á drottningafæðu, þá verður
það að drottningu en ekki vinnu-
dýri. Vinnudýrin lifa á blóm-
dufti og hunangi, en drottning-
amar eru aldar á sérstöku
,,hlaupi“, sem myndast í vinnu-
dýrunum úr blómdufti og hun-
angi.
Dr. Gardener efnagreindi
þetta hlaup, og komst að þeirri
niðurstöðu, að meginmunurinn
á því og ótilreiddu blómdufti og
hunangi var sá, að meiri kjarna-
sýra var í hlaupinu. Þegar ban-
anaflugum var gefið þetta
hlaup, hækkaði meðalaldur
þeirra um 47%. Ef kjarnasýr-
an hefur sömu áhrif á mennina,
mundi hún geta hækkað meðal-
aldur þeirra upp í níutíu ár. Enn
eru þessar tilraunir auðvitað á
algeru byrjunarstigi, en þeir
sem enn eru innan við þrítugt,
hafa gilda ástæðu til að vænta,
að þær verði farnar að bera
árangur áður en ellihrörnunin er
orðin persónulegt vandamál
þeirra.
Brezkir vísindamenn vinna að
ellirannsóknum frá allt annarri
hlið. Þeir hafa lengi vitað, að
lifandi vefur, sem tekinn er úr
lifandi líkama, getur lifað áfram
í rétt samsettum næringarvökva
miklu lengur en líkaminn, sem
hann var tekinn úr.
Jafnvel þó að vefurinn hafi
verið gamall, þegar hann var
numinn á brott, fer hann að
vaxa eftir nokkurn tíma; og
vöxtinn má örva með því að
baða hann í vökva úr vefjum
ungra dýra sömu tegundar.
Þetta bendir til, að önnur or-
sök ellihrörnunar kunni að vera
breytingar í frumuvökvanum.
Næsta skrefið var að athuga,
hvort breytingar á vökvanum
ættu sér raunverulega stað í
heilbrigðum öldungum. Prófess-
or A. P. Thomson við háskól-
ann í Birmingham hefur sýnt
fram á, að blóðið í heilbrigðu,
gömlu fólki er greinilega frá-
brugðið blóði í ungu fólki.
Breytingarnar eru þess eðlis, að
þær benda til slits á nýrna-
hettunum. Þetta kann að reyn-
ast mikilvæg vísbending, því að
nýrnahetturnar eru einmitt þeir