Úrval - 01.12.1949, Síða 35
VAFASAMAR KENNISETNINGAR 1 UPPELDISFRÆÐI
.33
foá lund, að flest uppeldisvanda-
mál eigi rót sína í kynhvöt
foarnsins. Það má segja íslenzk-
um kennurum til hróss, að þeir
hafa ekki verið nærri því eins
ginkeyptir við þessari flugu og
starfsbræður þeirra víða um
lönd. Veldur hér sjálfsagt miklu
um, að íslenzkir sálfræðingar
hafa ekki verið sannfærðir um
sannleiksgildi þessarar tilgátu
<og því ekki boðað almenningi
hana sem sannindi. Þó hef ég
víða orðið þess var, að margir
álíta þessa kennisetningu vera
kjama þess, sem þeir nefna
„hina nýju sálarfræði“. Nú er
að vísu gott að hafa eyrun opin
fyrir öllum nýmælum, en hitt
ber vitni ósjálfstæði og van-
þroska, að ganga þeim á hönd
umhugsunarlaust. Hið nýja
verður að sannprófa engu síður
en hið gamla. Þeir sem fylgja
hinu nýja einungis af því að
það er nýtt, eru á sína vísu jafn-
ósjálfstæðir og þeir, sem fylgja
hinu gamla einungis af því, að
það er gamalt.
Kennisetningin, að kynlífið í
frumhernsku sé ákaflega mikil-
vægt fyrir allan andlegan þroska
barnsins, hefur alloft leitt til
óheppilegra uppeldishátta, hinna
furðulegustu staðhæfinga og fá-
ránlegustu skýringa. Sumir for-
eldrar hafa orðið syo skelkað-
ir, að þeir hafa neitað sér um
að sýna börnum sínum sjálf-
sögð og eðlileg blíðuatlot, af ótta
við að æsa með þeim kynhvöt-
ina. — Telpa nokkur 3 ára og
9 mánaða var í leikskóla hjá
kunnum enskum sálkönnuði,
Mrs. Melanie Klein. Telpan hafði
bíl og mannlíkan til að leika
sér að, en kastaði mannlíkaninu
jafnan út úr bílnum. Forstöðu-
konan skýrði þetta atferli telp-
unnar á þá lund, að hún væri
reið eða afbrýðisöm við föður
sinn vegna þess, að hann hefði
kynmök við móður henn'ar.
Reyndi hún nú að koma telpunni
í skilning um þetta. Telpan hafði
verið erfið heima, og til sönn-
unar því, að skýring þessi væri
rétt, getur Mrs. Klein þess, að
telpan sé nú vingjarnlegri við
sig en hún var fyrst og vilji
vera í leikskólanum næstu viku.
Annar þekktur enskur sálkönn-
uður, Dr. S. Isaacs, sem nú er
nýlátinn, telur, að matvendni
barna, naglanag, fingursog,
sóðaskapur þeirra, þ. e. erfið-
leikar á því að temja þeim hrein-
læti o. fl. þ. h., eigi rót sína
að rekja til kynferðilegrar tog-
streitu í sál þeirra. En fæstar