Úrval - 01.12.1949, Page 69
MAÐURINN, SEM FANN PENISILLÍNIÐ
67
fór ég til London. Þegar ég hafði
lokið skólanámi, vann ég á skrif-
stofu skipafélags í fjögur ár.
Ég hafði yndi af sundi, það
réði miklu um, að ég fór einn
góðan veðurdag í St. Mary
læknaskólann, þar sem starfandi
var sundfélag. Þar komst ég
undir áhrif Sir Almroth Wright,
eins mesta sýklafræðings Breta,
og með honum vann ég í meira
en fjörutíu ár. Án hans hefði
ég kannski aldrei orðið sýkla-
fræðingur, og ef ég hefði ekki
orðið sýklafræðingur, mundi ég
aldrei hafa fundið penisillínið.“
Sveitadrengurinn frá Ayr-
shire kann að hafa verið áhuga-
samur sundmaður, en hann var
líka áhugasamur námsmaður.
Hann hlaut mörg námsverðlaun
og námsstyrk til framhaldsnáms
! náttúruvísindum; og hann fékk
ágætiseinkunn í líffræði, lyfja-
fræði, sjúkdómafræði og heilsu-
fræði.
En hið mikla starf hans í St.
Mary sjúkrahúsinu tók ekki alla.
starfsorku hans. Sem ungur
maður var hann fjórtán ár í
skozku herdeildinni í London og
varð afburða riffilskytta. 1 fyrri
heimsstyrjöldinni var hann her-
læknir.
Þegar stríðinu lauk, varð Al-
exander Fleming prófessor í
sýklafræði við St. Mary lækna-
skólann og aðstoðarforstjóri
bólusetningardeildarinnar og
hóf vísindarannsóknir sínar af
fádæma þolinmæði og þraut-
seigju.
Sir Alexander segir sjálfur
hispurslaust, að starf sitt við
uppgötvun penisillínsins sé ekki
mesta afrek sitt í lífinu. Hann
brosir að þjóðsögunum, sem
spunnizt hafa um þá einu upp-
götvun. Mest gaman þykir hon-
um að sögunni, sem segir, að
uppgötvunin sé eingöngu að
þakka. gleymsku hans að borða
brauðsneiðar, sem hann hafði
tekið með sér í vinnustofuna til
hádegisverðar. Hálfum mánuði
seinna, segir sagan, borðaði
hann annars hugar eina brauð-
sneiðina, sem var farin að
mygla, og brá þá svo við, að hon-
um batnaði skyndilega illkynj-
uð kýlapest, sem hann þjáðist af.
Önnur saga segir, að Sir Alex-
ander hafi tvisvar bjargað lífi
Winston Churchill — í fyrra
skiptið, þegar þeir báðir voru
drengir, bjargaði hann Churchill
frá drukknun í skozkri tjörn, og
aftur í Norður-Afríku á stríðs-
árunum með penisillíni. „Þetta
er falleg saga,“ segir Sir Alex-