Úrval - 01.12.1949, Page 72
70
ÚRVAL
verkamaður, er hún þá dæmd
um alla eilífð til ,,basls“ þess
og „fátæktar" sem um getur í
hjúskaparheitinu: ,,í blíðu og
stríðu, í auðlegð og fátækt“?
Hver segir, að svo þurfi að
vera? Staðreyndirnar segja það.
Starf hennar hefur alltaf verið
erfitt, ábyrgðarmikið og tækin
til að leysa það af hendi ófull-
komin. Það mundi fljótt koma
hljóð úr horni, ef handverksmað-
ur væri beðinn að vinna með
jafnlélegum áhöldum og þeim
sem fullgóð þykja í eldhúsinu.
Margt hefur stuðlað að því á
undanförnum tíu árum, að gera
starf hennar enn erfiðara. Það
kann að vera, að mennirnir tali
um fjárhagserfiðleikana. En það
eru konurnar, sem þekkja þá og
glíma við þá daginn langan í við-
leitni sinni til að láta tekjurnar
hrökkva fyrir þörfum heimilis-
ins. ,
Heiminum er enn að mestu
stjórnað af karlmönnum og í
samræmi við skoðanir og hug-
myndir karlmanna. Ætlast er til
fórna af konunni — giftri og ó-
giftri — í þessum heimi karl-
mannanna. Ég man eftir átak-
anlegu dæmi. Af tveim systkin-
um í f jölskyldu var dóttirin búin
afburða listrænum hæfileikum,
og allir hvöttu til að hún fengi
tækifæri til að þroska þessa,
hæfileika sína. En þegar til kom
var það sonurinn, sem hlaut þá
menntun, er foreldrarnir höfðu
efni á að láta börnum sínum í
té. Sú aldagamla skoðun, að
sonurinn eigi að hafa forrétt-
indi, er lífseig.
Og ofan á þessa fórn bættist,
að dóttirin varð að helga sig um-
sjá foreldra sinna, þegar ellin
sótti þau heim.
Byrðin sem hvílir á herðum
húsmóðurinnar er enn þung. Um-
hyggjusamur eiginmaður getur
létt hana. En hvernig?
Einkum með tvennu móti. í
fyrsta lagi með því að gera al-
varlega tilraun til að skilja kon-
una sína sem konu, er hefur sem
slík sjónarmið, sem í grundvall-
aratriðum eru frábrugðin sjón-
armiðum hans. I öðru lagi með
því að viðurkenna, en taka ekki
sem sjálfsagðan hlut, að það
sem hún gerir fyrir hann sé
venjulega miklu meira en það
sem hann á kröfu til samkvæmt
hjónabandssáttmálanum, og
með því að sýna þessa viður-
kenningu í verki.
Hið fyrsta sem sérhver eigin-
maður þarf að skilja, er ef tii
vill það, að raunverulega ríkir