Úrval - 01.08.1951, Page 101

Úrval - 01.08.1951, Page 101
ÞEGAR HJARTAÐ RÆÐUR 99 Unga fólkið kom saman á einu eða öðru heimili til þess að lesa upp, ræða um Victor-Hugo og rómantísku skáldin. Áróra örv- aðist við heimsóknir vina sinna. Þeir voru í tengslum við heim hókmennta og stjórnmála. Þeir skoðuðu listasöfn og sóttu ieik- húsin. Sumarið 1830 var Jules San- deau meðal gestanna. Hann var byltingasinnaður, frjálsiyndur í stjómmálum og mikill aðdáandi Hugos. Aróra varð luifin af hinni miklu ást þessa unga manns á öllum skáldskap, en hún var enn hrifnari af ljósu hári hans og unglingslegu andliti. Hann var grannur og kvikur í hreyfing- um og ekki laus við að vera feiminn. Hann var aðeins nitján ára gamall. „Þegar ég hitti hann,“ skrifaði Áróra einni vin- konu sinni, „var ég ákaflega böl- sýn á lífið. Ég hélt að ég gæti ekki orðið hamingjusöm framar. Hann yljaði köldu hjaría minu.“ Eftir að Solange fæddist, voru bréf Aureliens henni til lítillar huggunar. Þau voru jafnvel stundum kuldaleg. Hún ákvað að rifta sambandinu milli þeirra og hætti að svara bréfum hans. Þó hittust þau einu sinni enn. Henni fannst hann vera „eili- legri og ekki eins glæsilegur“ og áður. Hvernig gat Aurelien keppt við cher enfant, sem heim- sótti hana daglega, og las fyrir hana verk Hugos, meðan Casi- mir hraut í hægindastólnum sín- um? Þegar haustaði og gestirnh’, ásamt Sandeau, hurfu aftur til Parísar, varð Áróru þungt í skapi. Það var orðið óþolandi fyrir hana að vera ein með Casi- mir. Hingað til hafði hún borið byrði sína með þögn og þolin- mæði, en hve lengi yrði hún fær um það? Hvílík ógæfa, að hún skyldi vera bundin Casimir! Hún gat ekki losað sig við hann á sama hátt og Aurelien. Hún var lögleg eign Casimirs og það var engin leið að fá skilnað, það var jafnvel ekki næg ástæða til skilnaðar, þó að hann hefði átt barn með einni vinnustúlkunni á setrinu, sem var þó sannað mál, því að hún hafði kennt hon- um bamið og krafizt meðlags. Og Claire vinnukona var ekki sú eina. Og þó að skilnaður feng- ist að lögum, þá myndi kirkjan aldrei samþykkja hann. Hve lengi? Hve lengi? Hún var alltaf að spyrja sjálfa sig þessarar spurningar, þegar hún var að flýja úr einu herberginu í annað til þess að forðast eigin- manninn. Dyngja ömmunnar var eina afdrepið. Börnin sváfu í næsta herbergi og hún heyrði andardrátt þeirra, þegar hlé varð á drykkjulátum Casimirs og félaga hans. Andardráttur barnanna veitti henni þrek til þess að skrifa sögurnar, sem höfðu verið að skapast í huga hennar. Hún lauk við stutta sögu, Aimée, sem samin var eft-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.