Úrval - 01.08.1951, Side 116

Úrval - 01.08.1951, Side 116
114 TjRVAL út í í febrúarmánuuði 1834, held- ur lifandi skáldsaga, sem var miklu hættulegri en nokkur veruleiki. Því að þeir vítisvind- ar, sem báru hann og hinar per- sónurnar tvær til hinztu strand- arinnar, illa til reika en þó fræg- ar fyrir hrakning sinn, voru skapaðir af frábæru ímyndunar- afli tveggja persóna, máttugu til góðs og ills. Pietro Pagello, sem var maður mjög hæglátur og afskiptalaus, reyndist þrátt fyr- ir það nauðsynlegt skilyrði þess, að George Sand og Alfred de Musset öðluðust þá rómantísku fullnægingu, sem þau þráðu. Musset hafði alltaf verið af- brýðisamur, en nú keyrði um þverbak. George og Pagello voru elskendur — hann var orðinn viss um það. Hann njósnaði um þau með hálfluktum augum, þegar þau héldu að hann svæfi. Eitt kvöld — hann var aldrei viss um hvort það var veruleiki eða draumur — sá hann milli rekkjutjaldanna, að kona sat á hnjánum á karlmanni og var að kyssa hann. Musset langaði að reka upp óp, en gat aðeins vein- að lágt. Þegar Pagello heyrði hljóðið, flýtti hann sér til sjúk- lingsins, tók á slagæðinni og sagði við George: „Hann er betri.“ Svo var það uppistandið út af tebollanum. Alfred hafði vaknað og sá aðeins einn bolla á dúkuðu borðinu. „Drakkstu te í gærkvöldi?“ spurði hann. „Já, ég drakk te með lækn- inum.“ „Hversvegna er ekki nema einn bolli á borðinu?“ „Stúlkan hefur sennilega tek- ið hinn.“ „Hún hefur ekki tekið hann,“ sagði hann reiður. „Þið hafið drukkið úr sama bollanum." „Þó að við hefðum gert það, þá kemur þér það ekki við.“ „Víst kemur mér það við. Ég telst þó ennþá elskhugi þinn.“ Þannig var sambúð þeirra orð- in — ásakanir og rifrildi. Dag nokkurn léku þau George og Pagello hlutverk, sem þau höfðu komið sér saman um áður. „Haldið þér, læknir, að Alfred sé orðinn nógu frískur til þess að þola alvarlegt áfall?“ „Þér eigið við — ?“ sagði Pagello og lét sem hann kæmi af fjöllum. „Jæja, þá segi ég honum það,“ hélt hún áfram. „Góði Alfred, ég er ekki lengur ástmey þín. Héðan í frá get ég aðeins verið vinur þinn. Ég elska dr, Pa- gello.“ Musset leit af einu á annað og trúði ekki sínum eigin eyrum. Svo varð hann gripinn ofsa- bræði, réðist að George og reiddi til höggs. Pagello gekk á milli. Orð George komu eins og köld vatnsgusa á logheitar tilfinning- ar Mussets. Honum hafði nú verið fengið það hlutverk, sem enginn- mennskur maður mátti valda. Höndin, sem hann hafði reitt til höggs, féll aftur niður.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.