Úrval - 01.04.1953, Qupperneq 98
Flóttinn úr Paradís
S ag a
eftir Arthivr Omre.
Afögrum degi, seint í júní,
lauk Stefansen lektor mjög
stuttri og formlegri ræðu með
orðunum „og svo vona ég, stúlk-
ur mínar, að þið skemmtið ykk-
ur allar reglulega vel í sumar-
leyfinu og að við getum haldið
samstarfinu áfram í haust.“
Síðan hneigði hann sig, dálítið
settlega.
Þær risu allar á fætur og
hrópuðu: „Takk sömuleiðis,
Ad-onis
Stefansen lektor reyndi að
bjarga virðuleika sínum með
breiðu brosi, en hann fann að
hann roðnaði, fann sig nánast
vamarlausan gagnvart öllum
þessum yndisþokka æskunnar.
Þess vegna hafði hann vanið sig
á að vera með þóttafullan alvöru-
svip við kennsluna, stundað hana
af kappi og haldið sér við efnið.
Þær komu í langri röð og
þökkuðu honum, ó, þessar ynd-
islega hættulegu stúlkuhendur.
Sú versta af þeim öllum, sú
mýksta og liprasta, sú falleg-
asta meðal hinna fallegu, lagði
höndina á öxl hans og kyssti
hann á vangann. Mjúk snerting,
léttur andardráttur. En hún var
líka dóttir aðalkonsúls og hét
Mía.
Niðri í garðimun varpaði
hann öndinni af feginleik, rétt
eins og hann hefði sloppið ó-
skaddaður undan hópi tígris-
dýra, og hann lofaði guð fyrir
að hann hafði haft vit á að af-
þakka boðið á skólaskemmtun-
ina. Hann settist á bekk, fór
að blaða í ferðabæklingum,
stakk þeim aftur ofan í töskuna
og horfði hugsandi á ungu
stúlkumar, sem hlupu og döns-
uðu eftir gangstígnum. Fuglarn-
ir kvökuðu og grasið milli trjá-
bolanna varð gulgrænt á litinn í
sólskininu. Frá blómstrandi
sýrenutré barst höfug angan.
Ungfrú Eide kom gangandi
eftir garðstígnum, klædd rós-
óttum sumarkjól.
„Mér datt í hug að fara og
hitta þig, það er svo gott veður
í dag“, sagði ungfrú Eide.
Stefansen brosti og muldraði
„dásamlegt, Soffía“, og hann
brosti alla leiðina inn í bæinn,
sem að vísu var ekki langur spöl-
ur. Ungfrú Eide horfði á hann,
varð undrandi og fór sjálf að
brosa. Stefansen lektor var ekki
vanur að brosa lengi í einu.
Sendibíll Nielsens bakara flaut-
aði yfir í Stórgötunni. Stefansen
lektor rankaði við sér og gáska-
svipurinn á andliti Míu hvarf.