Úrval - 01.06.1953, Page 11

Úrval - 01.06.1953, Page 11
LlF 1 STAÐ DAUÐA 9 úr þessum skaðlegu áhrifum. Þetta tókst honum með því að nota karbólsýruna allmikið þynnta og nota þannig umbúðir að þær héldu sem lengst í sér karbólsýrunni. Hann lét einnig hreinsa skurð- tækin með sóttvarnarefnum, þvoði sér um hendumar og sótt- hreinsaði þær á undan hverri að- gerð og gerði aðrar ráðstafanir sem hindrað gátu eða dregið úr hættunni á sýkingu. Eft- ir nokkurn tíma tók hann upp á að láta úða karbólsýru í andrúsmloftið í sjúkrastofun- um. En hann varð brátt að hætta því, þar eð fyrir kom að bæði sjúklingar og læknar fengu karbólsýmeitrun. Um þessar nýju aðferðir sín- ar skrifaði Lister í læknatíma- ritið Lancet vorið 1867. Á lækna- fimdi í Dublin sama ár hélt hann fyrirlestur um sama efni. Um árangurinn af aðferðum sínum sagði hann m. a.: ,,Ég hef oft blygðast mín fyrir að þurfa að tilkynna svona mörg tilfelli af spítaladrepi og blóðeitrun í skýrslum mínum. Ef í öllum, eða næstum öllum rúmum, lágu sjúk- lingar með opin sár, brást varla að þessir fylgikvillar kæmu til sögunnar. En síðan sótthreins- unaraðferðir mínar voru teknar í notkun, hefur orðið gjörbreyt- ing á sjúkrastofum mínum. Und- anfarna níu mánuði hefur eng- inn sjúklingur fengið blóðeitrun, spítaladrep eða heimakomu." En þö að Lister gæti sýnt fram á svona góðan árangur af aðferðum sínum, fengu þær mis- jafnar undirtektir hjá starfs- bræðrum hans í Englandi. Marg- ir gagnrýndu harðlega bæði að- ferðimar og Lister sjálfan og töldu sumir hann skottulækni. Nú var Lister að vísu ekki ræðumaður, hann stamaði dá- lítið, og auk þess var honum ósýnt um að skrifa. Það má því kannski segja andstæðingum hans til afsökunar, að andstaða þeirra hafi verið reist á mis- skilningi. Auk þess hafði hon- um ekki tekizt að færa sönnur á að bakteríur væru meginorsök sárasjúkdóma. Það var í rauninni aðeins á- gizkun, sem studd var sterkum líkum, en það átti eftir að koma í ljós, að þessi ágizkun var rétt. í raun og veru var öflugasta andstaðan sprottin af öfund og afbrýðisemi, eða af því að and- stæðingarnir höfðu ekki kynnt sér nægilega grundvallaratriðin sem Lister reisti aðferðir sín- ar á. 1 Þýzkalandi og Austurríki fékk Lister ákafa fylgjendur. Einn þeirra var Nuszbaum pró- fessor í Miinchen. Hann skrifaði árið 1875 eftir að hann hafði notað sótthreinsunaraðferðir Listers: „Undanfarið ár hafa í rauninni ekki dáið aðrir sjúk- lingar en gamlir krabbameins- sjúklingar eða fólk, sem hefur brotið á sér höfuðkúpuna . ..“ Því hefur verið haldið fram, að ástæðan til þess að skurð-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.