Úrval - 01.06.1953, Qupperneq 12

Úrval - 01.06.1953, Qupperneq 12
10 ÚRVAL læknisfræðin í þessum löndum stóð á miklu hærra stigi en ann- arsstaðar á síðari helming 19. aldar hafi einmitt verið sú, að aðferðir Listers voru þar snemma og almennt teknar í notkun. Eftir að Lister hafði verið gerður prófessor í skurðiækn- ingum við háskólann í Edinborg árið 1869, sem eftirmaður tengdaföður síns, James Syme, sem var frægur skurðlæknir, hélt hann áfram að endurbæta sótt- varnaraðferðir sínar. Einkum náði hann góðum árangri með tilraunum sínum til að dauð- hreinsa girni (eatgut), en það er þráður, sem gerður er úr göm- um grasæta og notaður er til að binda fyrir æðar og sauma djúpt í skurði. Þráður þessi eyð- ist í líkamanum.*) Á þeim tímum notuðu menn silkiþráð til að binda fyrir æðar og létu Ianga þráaðrenda lafa út úr sárinu. Oft gróf þráðurinn út eftir nokkra daga, og var hann þá tekinn með því að toga í endana. Ósjaldan olli þetta hættulegum blæðingum. Notkun dauðhreinsaðs girnis var geysimikil framför. Nú var hægt að sökkva þræðinum í skurðinn og loka sárinu strax. Þar með vom sköpuð skilyrði til að framkvæma stórar og vandsamar skurðaðgerðir. Lister endurbætti einnig dauð- *) Sjá greinina „Þegar lífið hang- ir á þræði“ í 3. hefti þ. á. hreinsun sáraumbúða og byrj- aði á að nota gúmmíkerra til að taka við útferð úr sárum. Fyrsti sjúklingurinn, sem hann notaði við gúmmíkerra var Viktoría Englandsdrottning. Er frá leið, óx Lister í áliti og fjöldi lækna víðsvegar að úr heiminum kom til Edinborgar, sem þá var orðin miðstöð skurð- læknisfræðinnar. Þó hlaut hann frekar kuldalegar móttökur þeg- ar hann var skipaður prófessor í skurðlækningum við Kings College í London. Mælt er að þekktur skurðlæknir í London hafi sagt eftir að hann hafði í fyrsta sinn séð Lister gera við brotna hnéskel: „Þegar þessi sjúklingur er dáinn, vona ég að höfðað verði mál á hendur þess- um manni, svo að loksins verði hægt að taka hann fastan.“ En eftir því sem árin liðu, hlaut andstaðan að linast. List- er, sem áður hafði verið gagn- rýndur og hæddur af starfs- bræðrum og stúdentum, var nú hlaðinn hverskonar heiðurs- merkjum og titlum. Hann varð forseti Konunglega brezka vís- indafélagsins, var sæmdur aðals- tign og hlaut setu í efri mál- stofu brezka þingsins, og er hann eini skurðlæknirinn, sem hefur verið aðlaður fyrir læknis- störf sín. Auk þess var hann gerður heiðursfélagi í f jölda vís- indafélaga víðsvegar um heim. Síðustu árin lifði Lister kyrr- látu einstæðingslífi í litlu fiski-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.