Úrval - 01.06.1953, Page 15
HVERNIG ÉG VARÐ SPÁKONA
* 13
trúa á dulargáfu spákonunnar,
það getur ruglað hana og beint
henni inn á ranga braut. Jafn-
vel þótt svarið byggist á heil-
brígðri skynsemi — þarf það
samt ætíð að vera rétt? Það
er allt of auðvelt að sannfæra
fólk um að það hafi rétt fyrir
sér.
Ég minnist fallegrar konu
með hláturhrukkur kringum
augun. Ég sagði henni, að ég
sæi bókstafinn „B“ í lófa henn-
ar. Nú þekkja allir einhvern sem
ber nafn, er byrjar á „B“, en
þetta hafði mikil áhrif á hana.
,,B“hlaut að tákna dóttur henn-
ar, sem hét Betty. Hún sagði
mér að Betty ætti heima í 800
km f jarlægð og ætti von á fyrsta
barni sínu. Þarf mikið ímynd-
unarafl til að spá því, að þessi
kona myndi brátt fara í ferða-
lag? Varla.
Ég sagði myndarlegum manni
að ég sæi töluna 4 í lófa hans.
Þetta varð þegar í stað hans
tala. Það voru fjórar persónur
í f jölskyldu hans. Hann dró spil-
in þrisvar, og alltaf komu f jark-
ar upp. Þessi tilviljun eyddi öll-
um efa varðandi hina furðulegu
hæfileika mína, og hann spurði
mig í fullri alvöru, hvaða verð-
sveiflur myndu verða á kaup-
höllinni.
Maðurinn í kjólfötunum hafði
augsýnilega öðlazt hinn brúna
hönmdslit á golfvelli klúbbsins.
Þegar ég sagði honum þetta,
sem lá í augum uppi, varð hann
stórhrifinn. Brátt fór hann að
spyrja mig ráða út af heilsu-
leysi konu sinnar.
Jafnvel sá, sem er þögull og
vantrúaður, hjálpar einatt spá-
konunni. Hann segir ekkert, sem
gæti gefið upplýsinga um hann,
en hann er sjaldan svo góður
leikari, að það sjáist ekki á aug-
um hans, ef svarið er rétt.
Þegar ein konan hafði lýst
fyrir mér ýmsum sjúkdómsein-
kennum, sem bentu ískyggilega
til krabbameins, spurði ég hana,
hvað læknir hennar segði. „Ó,
góða mín,“ svaraði hún, „ég þori
ekki að fara til læknis! Ég hef
ekki sagt nokkrum manni frá
þessu.“
Hvemig gat hún setið þarna
prúðbúin og ímyndað sér, að
manneskja, sem hafði ekki neina
læknisþekkingu, gæti læknað
hana með spilum?
Hin sorglegt staðreynd er, að
fólk vill trúa á spákonuna. Þessi
ósk fólks að trúa, eykur blekk-
ingarmátt spákonunnar. Báðar
geta þær í sameiningu gert
hverja tilviljun að opinberan,
breytt blekkingu í von, efa í
fagnaðarríka vissu.
Við lékum hlutverk okkar svo
vel, að við vorum beðin að end-
urtaka atriðið seinna. En áður
en af því yrði, ákváðum við að
kynna okkur betur þetta mál
allt.
Við komumst að raun um, að
185 af dagblöðum Bandaríkj-
anna birta daglegar stjörnuspár.
Þetta þýðir að 22,500,000 lesend-
ur fá daglega leiðbeiningar af