Úrval - 01.06.1953, Page 16
14 *
ÚRVAL,
þessu tagi. Yfir 700 stjörnu-
spámenn hafa tekjur sem era
yfir meðallag.
Það er gefin út tylft af
stjörnuspáritum. Fimm þau
helztu koma út í meira en einni
milljón eintaka. Maður nokkur
í Los Angeles græðir árlega 20
þús. dollara á því að leggja
,,hóróskóp“ fyrir hunda. Það eru
til margskonar sérfræðingar á
sviði stjörnuspámennskunnar.
Þeir eru reiðubúnir að aðstoða
yður, ef þér viljið borga fyrir
það.
Þegar ég tók loks aftur að
mér spákonuhlutverkið, var ég
ákveðin í að byggja ekki á ein-
tómum ágizkunum. Ég hafði
kynnt mér þýðingu táknanna í
dýrahringnum, hafði meðferðis
merkt spil og bók, sem fjallaði
um ,,vísindi“ lófalestursins.
Þrátt fyrir allan þennan und-
irbúning, var árangurinn þetta
kvöld miklu lakari en hitt kvöld-
ið, þegar ég kom óundirbúin
og lét stjórnast af hugmynda-
fluginu einu saman. Þetta kvöld
var síðasta kvöldið mitt sem
spákona — en þó var ég ekki
laus allra mála. Vinir og kunn-
ingjar brosa, þegar þeir heyra
frásögu mína — og heimsækja
mig einslega, til þess að láta
mig lesa í lófa sína.
Við glímum öll við vandamál,
sem þarf að leysa, spumingar,
sem við verðum að fá svarað.
En hvenær verðum við það
þroskuð, að við höfnum slíkum
blekkingarlausnum sem þess-
um? „Við trúum ekki einu orði
af því,“ segja vinir mínir, ,,við
gerum þetta aðeins að gamni
okkar.“ ó. b. þýddx.
★ ★ ★
Skotasag'a.
Laxveiðimaður frá London var við veiðar í á einni í Skotlandi.
Hann tók eftir því, að fylgdarmaður hans, sem var Skoti, var
alltaf berhöfðaður hvernig sem viðraði. Hann keypti því skinn-
húfu með eyrnahlífum og gaf honum að skilnaði um haustið.
Næsta sumar, þegar Lundúnabúinn kom til að veiða, spurði
hann Skotann hvernig honum líkaði skinnhúfan.
,,‘Ég hef ekki notað hana síðan ég' varð fyrir óhappinu," svar-
aði Skotinn.
„Hvaða óhappi?"
„Jock MacLeod bauð mér upp á wisky," sagði Skotinn og and-
varpaði, „og ég heyrði það ekki.“
— United Mine Workers Journal.
Hann kom án efa nær sannleikanum en hann grunaði, skóia-
drengurinn, sem skrifaði i stílnum sínum: „Vopnahléssamning-
arnir voru undirritaðir 11. nóvember 1918, og síðan hefur verið
haldinn tveggja mínútna friður á hverju ári.“
Lilliput.