Úrval - 01.06.1953, Page 18

Úrval - 01.06.1953, Page 18
16 tJRVAL sjálfstrausts. Og sjálfsgagnrýn- in er engin. Sérhver fyndni sem þú býrð til, finnst þér óborgan- leg; þér finnst samtölin þín á- nægjulega lík samtölum sem þú hefur lesið í bókum annarra, lýs- ingar þínar snjallar og falla vel að efninu. Að því er ég bezt man, hafði ég aðeins áhyggjur af einu: hvort sagan næði 80.000 orðum. Mér hafði verið sagt, að 80.000 orð væri það minnsta, sem útgefendur litu við, og mér óx sú lengd mjög í augum. Ég hlýt að hafa vitað, að til væri eitthvað sem héti bók- menntir — að minnsta kosti hafði ég lært bókmenntasögu í skóla. En þrátt fyrir hégóma- girnd mína kom mér aldrei til hugar að reyna að skrifa neitt það, sem talizt gæti til bók- mennta. Hið eina, sem mig lang- aði til, var að búa til bók — og til þess þurfti ég að skrifa 80.000 orð. Nei, bíðið við! Það er ekki rétt að eina von mín hafi verið að búa til bók. Það sem ég vildi, var að búa til „snjalla" bók. Ég hafði í huga það sem ég hélt, í sakleysi mínu, að væri algerlega nýtt efni, túlkun á sögu Nýja testamentisins í nú- tímabúningi, eða öllu heldur framtíðarbúningi, þar sem fólk ferðaðist í geysistórum loftför- um. Það var trú mín, að þetta söguefni (sem mér var full al- vara með) mundi valda talsverð- um úlfaþyt, og ég sá fram á að allt líf mitt mundi breytast við útkomu bókarinnar. Ég ímyndaði mér að ritstjórar, sem áður höfðu endursent smásögur mínar af óskeikulli reglusemi, myndu brátt gleypa við þeim. Ég sá mig í anda kveðja hús- bændur mína og verða það sem mig hafði dreymt um frá bernsku — atvinnurithöfundur.. Eða trúði ég í alvöru á þessa dagdrauma? Ég veit það ekki: með vissu. Það var góðvild Philips Gibbs, hins góðkunna rithöfundar og blaðamanns, að þakka, að þetta fjarstæðufulla verka var, eftir að hafa farið bónleið til margra búða, gefið út. Hann gaf mér meðmæli til útgefanda síns, og það dugði. Ég fékk 27 pund fyrir bókina. Það var skrifað um hana — af einstöku umburð- arlyndi — í eitt blað í London og annað úti á landi, að mig minnir. Og ég hugsa, að einn eða tveir göfuglyndir menn hafi jafnvel keypt hana; einhver bjartsýnn maður hlýtur að minnsta kosti að hafa keypt ein- takið sem ég fann í Lincoln. En allt um það: þetta urðu endalok málsins — nema að þeim tókst ekki að kæfa í mér löngunina til að skrifa. Já, þessi fyrsta tilraun mín var hörmulegt samsull. En tala ég í einlægni, þegar ég segi að þessi vandræðabók hefði verið betur óskrifuð? Ég er ekki viss um að tíminn sem fór í að skrifa hana, hafi farið alveg til einskis.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.