Úrval - 01.06.1953, Síða 22

Úrval - 01.06.1953, Síða 22
Samtímis illviðrahrotunni hér á landi fyrrihluta árs 1949 gekk illviðrakafli yfir Miðvesturríki Bandarikjanna. Hér er frásögn blaðamanns af þeim náttúruhamförum. Illviðrabálkurinn mikli 1949. Grein úr „Readers Digest“ eftir Ben Funk. ENGINN, ekki einu sinni veð- urfræðingarnir sáu hann fyrir. Mælitæki þeirra sýndu ekkert sem benti til annars en „þykknandi lofts og ef til vill strjálings élja“. En 2. janúar skall hann á með aftakaveðri. Fárviðrið skall fyrst yfir Wyoming- og Colorado-fylkin með óhemju fannkyngi. Á nokkrum mínútum stöðvaðist öll umferð með bílum og flugvél- um, og innan fárra stunda var öll járnbrautaumferð stöðvuð. Voða-bylurinn færðist yfir allt eins og hvít heljar-martröð. Eft- ir því sem bylurinn stóð lengur, einangruðust fleiri borgir, og einstök hús fennti upp á þak- skegg. Um miðjan janúar voru 200.000 manns einangraðir og sáu fram á svelti. En úti í hag- anum hraktist nautpeningur og kvikfénaður undan öskrandi veðurofsanum, blindaður af snjókomunni, þangað til hann rakst á girðingar, sem heftu flótta hans; þar stóðu aumingja skepnumar í höm og króknuðu í hrönnum af kulda og hungri. Veðrahamurinn stóð í sam- felldar sjö vikur, til 19. febrúar, með nokkrum stuttum hléum. Veðurstofunum reiknaðist svo til, að sex „meiri háttar“ áhlaup hefðu gengið yfir á þessum 48 daga illviðrakafla, 25 daga höfðu verið ,,manndrápsveður“ og frostið komst niður í 45 stig á Celsius. Við og við stytti upp snjókomuna, en þá var venju- legast rok sem þeytti upp lausamjöllinni svo skafrenn- ingurinn lék lausum hala og fennti í öll skjól. Duglegir bændur, sem höfðu háð marga hildi við veðurguð- ina, sáu fram á að þessi bar- átta var þeim um megn og að bjargarvon þeirra yrði að byggj- ast á hjálp utan frá. Og hjálpin var fljótt í té látin. Flugvélar hersins flugu á öllum tímum sólarhringsins, þegar flugfært var, og vörpuðu niður matvæl- um, skjólflíkum og lyfjum til
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.