Úrval - 01.06.1953, Síða 30
28
tJRVAL
að tæknilegum ráðleggingum
um samfarir. Aílar umræður
um kynlífið eigi að vera sið-
ferðilegs eðlis. Það er ekki
ósvipað því ef ungum manni,
sem ekki kann að lesa, væri
skýrt frá þeim unaði sem lest-
ur góðra bókmennta veitir og
hve mikil andleg verðmæti má
sækja þangað, en látið væri
undir höfuð leggjast að kenna
honum að þekkja bókstafina.
Vissulega má segja margt
bæði fallegt og gott um blíðu,
samkennd, þolinmæði og lausn
frá ofbeldi og ruddaskap, en
reynslan sýnir að mjög tak-
markað gagn er að slíku tali.
Sjálfsagt getur það haft sann-
færandi áhrif á leiðitama ein-
staklinga, en oft geta menn,
sem sjálfir eiga við erfiðleika
að etja í kynlífi sínu, haldið
langa fyrirlestra um gildi há-
leitra og siðrænna skoðana á
kynlífinu, og víst er bæði æski-
legt og gagnlegt að hafa slík-
ar skoðanir, en þessir menn
sitja fastir í erfiðleikum sínum
eins fyrir því. Eg hygg að
finna megi fleiri skýringar 4
því hve prédikanir hafa lítil
áhrif. I fyrsta lagi eru skoð-
anir af þessu tagi í samræmi
við ríkjandi menningarástand,
sem lítur holdlegar nautnir
smáum augum. Þetta hafa
flestir menn hugboð um, eða þá
að menn eru í uppreisn gegn
því, og þessvegna fá þeir ekki
að vita annað en það sem þeir
vissu fyrir. I öðru lagi finnst
manni oft, að frumorsök allra
þessara fögru orða sé sú að
ræðumaðurinn eða höfundur-
inn kemst með því móti hjá að
nefna það sem hann er í raun
og veru að tala um, sem sé
kynferðismök, og að hann
mundi roðna ef hann nefndi
hlutina sínum réttu nöfnum.
Menn sem sjálfir eiga í erfið-
leikum eru næmir fyrir svona
afstöðu og fá enga stoð í orð-
um slíkra manna.
Þá held ég að hreinskilnar,
ítarlegar ráðleggingar um það
hvernig menn eigi að fara að
því að fá sem mesta gleði og
nautn af kynferðismökum séu
miklu gagnlegri fyrir kynheils-
una. Furðulega margir menn
vita alls ekki hvernig þeir eiga
að haga sér, jafnvel þó að svo
virðist sem þeir hefðu átt að
hafa mörg tækifæri til að læra
það, ef til vill er það stundum
svo, að sálarlíf þeirra getur ekki
borið byrði þessarar forboðnu
þekkingar, heldur losar sig við
hana á einn eða annan hátt.
Mikilvægt er einnig, að það létt-
ir svolítið á hræðslu- og sektar-
vitundinni í sambandi við kynlíf-
ið, að líta á það sem tæknilegt
vandamál, því að tæknileg
vandamál erum við vön að glíma
við nú á dögum. Mikilvægast af
öllu er þó, að þesskonar ítarleg
fræðsla, sem ekki skelfir þegar
til kastanna kemur, verka eins
og orkulind djúpt innra með
manni, og sú orka er mótvægi
gegn bernskuáhrifunum: vald-