Úrval - 01.06.1953, Page 32
30
ÚRVAL
málum sem ósiðsemi, en þeir
sem hafa sterka kynhvöt, telja
sig eina heilbrigða og kalla þá
sem daufir eru hömlubundna,
sljóa eða hræsnisfulla siðapré-
dikara. Á þennan hátt hjálpar
sjálfbyrgingsskapurinn okkur
til að ná því marki sem okkur
stendur til boða eins og menn-
ingu okkra er háttað á þessu
sviði: okkur finnst, að þrátt
fyrir allt séum við í rauninni
vel sett, við sættum okkur við
astandið eins og það er, þegar
bezt lætur án opinnar eða dul-
innar gremju.
Ef við eigum að komast lengra
verðum við að breyta viðhorfi
menningarinnar til kynlífsins
frá rótum, og þá er hún ekki
lengur núverandi menning okk-
ar. Allir munu vera sammála
um, að það sé verk margra kyn-
slóða, og við stöndum þegar ráð-
villt gagnvart fyrstu breyting-
unum. Það er til sænskur máls-
háttur, er gæti verið til orðinn
sem lýsing á ástandinu í kyn-
ferðismálunum: „Som man bád-
dar fár man ligga“ (eins og
sængin er reidd þannig liggur
maður). Ef við viljum láta fara
betur um okkur, nægir ekki að
slétta lökin rétt áður en gengið
er til hvílu, við verðum að skipta
um allan sængurbúnað.
Snjallræði.
Enski fjármálaráðherrann fékk nýlega tillögu frá „Kvenfélagi
frjálslyndra". Tillagan var á þá leið, að sérhver kvæntur skatt-
þegn fái leyfi til að draga frá skattskyldum tekjum sínum
kostnað við það að bjóða konunni sinni í veitingahús öðru hverju.
Pélagið rökstuddi tillögu sina með þvi, að það gæti ekki talizt
sanngimi, að maðurinn fái einungis að skemmta sér skattfrjálst
með viðskiptanautum sínum. Þessi risna sé sízt ónauðsynlegri
en önnur risna, sem er skattfrjáls.
— Det Rigtige,
■k
1 strætisvagni.
Unglingsstúlka kom inn í strætisvagn, fékk sér sæti, tók
duftpúðann upp úr töskunni sinni og fór að púðra sig. Þegar
hún hafði skoðað sig í litlum vasaspegli, tók hún upp varalitinn
sinn og litaði á sér varirnar. Þegar þessu atriði snyrtingarinnar
var lokið, tók hún upp naglaþjölina sína og fór að skafa undan
nögjlunum á sér.
Vagnstjórinn, roskinn maður, hafði fylgzt með þessu í spegl-
inum sínum, og mun honum hafa fundizt nóg um, því hann leit
aftur til farþeganna og sagði:
„Br ekki einhver hérna, sem vill fá lánað rakdótið mitt?“
— Magazine Digest.