Úrval - 01.06.1953, Side 47

Úrval - 01.06.1953, Side 47
LlTIL BÖRN ERU LlKA MENN 45 á þessar þrjár hliðar einangr- aðar og hverja um sig. Barnið þroskast sem ein heild. Sérhver athöfn sem það framkvæmir með líkamanum er jafn mikið háð stjórn heilans og vöðvum og beinum, og er auk þess mjög háð tilfinningalífinu. Þegar barnið getur fram- kvæmt nýja athöfn, er það fólg- ið í eðli þroskans, að hjá því vaknar unaðskennd, sem knýr það til að endurtaka athöfnina, æfa sig á henni og fullkomna sig í framkvæmd hennar. Það sigurhrós, sem barnið finnur til t.d. þegar það stendur upp í fyrsta skipti, livetur það til að reyna að ganga. Það er einnig sálræn hvatning sem ákveður hvenær barnið er fært um að inna af hendi hinar ýmsu at- hafnir. Áður en barnið byrjar að reyna að ganga eru ef til vill allir nauðsynlegir vöðvar og taugasambönd nægilega þrosk- uð, en barnið byrjar ekki til- raunir sínar fyrr en það hefur safnað nægilegum kjarki til að ráðast í þetta nýja verkefni. En öll þessi reglubundnu þroskaeinkenni gefa okkur að- eins ófullkomna mynd. Athugi maður þau úthaf fyrir sig og án tengsla við heildina, virðast þau næstum óbrigðul í stundvísi sinni og nákvæmni. Og ef barn- inu væri ekki annar vandi á höndum en að vaxa, án afskipta umheimsins, þá mundi því vissulega veitast létt að fram- kvæma þroskaáætlun sína. En undir eins og barnið fer að fá kynni af umheiminum gegnum skynfæri sín og notfæra sér vaxandi hæfileika sinn til skilnings, mæta því kröfurnar um aðlögun. Það er algeng skoð- un, að frumbernskan sé óvirkt æviskeið. En það er alrangt. Ungbarnið verður strax að byrja að læra spilareglurnar og laga sig eftir umhverfinu. Við getum því ekki gert okkur rétta grein fyrir þroska barnsins, ef við tökum ekki tillit til hins stöðuga þrýstings sem það verð- ur fyrir frá umhverfinu. Bamið kemst ekki hjá því að byrja þeg- ar í upphafi á hinu tvíþætta starfi sínu: að laga sig eftir umheiminum og að framkvæma þroskaáætlun sína. Og þetta setur barnið í vanda. Árekstrahættan sem þessu fylgir kemur greinilegast í ljós þegar við lítum á hinar ytri aðstæður, sem barnið býr við, og sem skapast af arfleið okkar og venjum. Þó að í menningar- þjóðfélögum nútímans gæti vax- andi viðleitni til að létta barninu lífið með bættri aðbúð og auk- inni tillitssemi í ljósi þess skiln- ings að ungbarnsskeiðið sé ör- lagaríkt fyrir framtíð barnsins, þá leggjum við eigi að síður marga steina í götu þess með margvíslegum boðum og bönn- um og kröfum um að það lagi sig eftir venjum okkar. Það er rétt, að margt í hin- um venjubundnu aðferðum okk- ar við meðferð ungbarna er
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.