Úrval - 01.06.1953, Page 77

Úrval - 01.06.1953, Page 77
HVERT ER LÖGMÁL SENNILEIKANS ? 75 að leita sér skjóls í nýjum sprengikúlugígum á þeirri for- sendu, að tvær kúlur féllu aldrei á sama blettinn. Að sjálfsögðu varð hermönnunum oftast að trú sinni; það eru miklu meiri líkur til að kúlurnar falli utan við gíginn en í hann, því að gígurinn er ekki nema örlít- ill hluti af öllu skotsvæðinu. En ef til væri nákvæm skýrsla um stöðu þeirra manna, sem orðið hafa fyrir sprengikúlum, mundi hún sýna, að þeir sem leituðu sér hælis í nýjum gígum urðu engu betur úti en þeir, sem skýldu sér í gömlum gígum af sömu stærð og lögun. Sama spurningin segir til sín við önnur tækifæri, t. d. í spil- um, og þá er hægur vandi að svara henni með tilraunum. I bridge er það talinn stórviðburð- ur, ef einhver fær 13 spil af sama lit á höndina, og það er rétt í þeim skilningi, að það kemur ákaflega sjaldan fyrir. En jafnmerkur og sjaldgæfur viðburður gerist í hvert skipti sem okkur er gefið í bridge. Því að áður en byrjað er að gefa, eru líkurnar til þess að þú fáir einmitt þau spil sem þú tekur upp að lokinni gjöf, nákvæmlega jafnmiklar og líkurnar til þess að þú fáir t. d. 13 spaða. Okkur verður sérstaklega starsýnt á síðari gjöfina, í fyrsta lagi af því að hún er svo einföld og auð- velt að muna hana og lýsa henni, og í öðru lagi af því að þetta eru ein allra sterkustu spil sem hægt er að fá í bridge. Ef þér finnst þetta ótrúlegt, þá ertu kannski fús til að gera eftirfarandi tilraun: Skrifaðu hjá þér 13 tiltekin spil (bæði lit og gildi) og berðu svo þessa tilteknu hönd saman við þau spil sem þú færð í framtíðinni. Það eru ákaflega litlar líkur til að þú munir nokkurn tíma fá þessi spil á höndina. Líkumar til þess að einhver fái fyrirfram tiltekin spil á höndina, t. d. 13 spaða, eru 1 á móti 635.013.- 559.559. Svipuðu máli gegnir um happ- drætti. Gerum ráð fyrir milljón happdrættismiðum á eina krónu miðann, sem allir hafa jafnar líkur til að vinna. Vinningslíkur þess sem á einn slíkan miða em 1 á móti 999.999 að því er snertir hæsta vinninginn. Frá sjónarmiði þess, sem á miðann, er það næstum kraftaverk að vinna hæsta vinninginn og litlu minna kraftaverk að vinna ein- hvern annan vinning. En lítum á málið frá sjónarmiði þeirra, sem reka happdrættið. í þeirra augum er ekkert eins víst og að vinnendur muni gefa sig fram, og þeim finnst ekkert und- ursamlegt við nöfn þeirra sem hljóta vinningana. Ef við gætum litið á atburði daglegs lífs frá sama sjónarhóli og þeir, sem reka happdrætti, ekki sem hluttakendur, heldur sem áhorfendur, þá mundum við komast að raun um, að þau
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.