Úrval - 01.06.1953, Síða 87

Úrval - 01.06.1953, Síða 87
ÆVINTÝRI 85 búnu mældi hann þau út einu sinni enn og fór. „Tommy hefir staðið í brös- um í kvöld,“ sagði Meakin ró- lega og leit um leið kankvíslega á stúlkumar. Hubert flýtti sér að bæta á sig kampavíni. Hann þurfti þess eftir viðkynninguna við Tommy. En kynningum var ekki enn lokið. Þarna kom nú að borð- inu einn sá stærsti, feitasti og viðbjóðlegasti kvenmaður, sem hann hafði nokkru sinni séð. Lítið arnarnef sat á milli fitubólginna kinna og fyrir ofan það voru tvö lítil, hvöss og græðgisleg augu. Hubert hryllti við þessum kvenmanni við fyrstu sýn. Hann gleymdi henni áreiðanlega ekki næstu daga. „Alló, alló, alló! “ skrækti hún, og hlammaði sér skessulega ofan á stól við borðið. „Ég var að leita að þér elskan,“ sagði hún við Dot. „Hvað á nú að brasa, Meaky?“ „Fáðu þér sopa, Lillý,“ sagði Dot, og ýtti til hennar flösk- unni.“ Þetta er vinur Luxys, f jarska sætur strákur. Ertu það ekki, elskan?“ Hubert glotti vesaldarlega. Það var kominn tími til að hypja sig. „Sæll og bless,“ sagði Lillý með fleðubrosi. „Hva va’nú aft- ur nafnið.“ „Watson,“ muldraði Hubert fullur andstyggðar. „Að hugsa sér!“ sagði Lillý og hellti kampavíni í það glasið, sem var hendi næst, sýnilega alveg sama, hvort það var not- að eða ekki. „Hann er lifandi eftirmyndin hans Kalla Prakk. Finnst þér það ekki, elskan? Finnst þér það ekki, Meaky?“ sagði hún og leit á hin. „Aldrei heyrt hans getið,“ sagði Meaky og gretti sig fram- an í hana, en Patsy hló, alls ekk- ert viðkunnalega. Áður en Hubert gæfist tóm til að fræðast um þennan Kalla Prakk, hljómaði hvellt flautu- blístur gegnum salinn. Píanóið þagnaði, dansinn hætti á auga- bragði og allir þustu á fætur. Öll ljósin slokknuðu nema eitt, sem var yfir dyrum á þeim enda salarins, er fjarlægari var upp- göngunni. Allt komst strax á ringulreið og borðum, stólum og glösum var þeytt til og frá. Hubert barst með straumnum gegnum dyrnar, með Dot og Meakin sitt til hvorrar handar. Dot sleppti ekki taki á handlegg hans. I næstu andrá þutu þau öll í mesta óðagoti gegnum illa lýstan gang. Hubert fann skess- una Lillý troðast á hælum sér, rekandi á eftir. Þetta hlaut að vera lögregluáhlaup. Það gat ekki annað verið. Hubert þráði ekkert meira en að komast í burtu, ekki einungis frá lögregl- unni, heldur einnig frá öllu þessu skrýtna fólki. En á því virtist ekki mikið færi, því að hann þekkti sig ekki hér, og ef hann skildi við félaga sína, var eins víst að hann lenti í höndum lög-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.