Úrval - 01.06.1953, Síða 98

Úrval - 01.06.1953, Síða 98
96 ÚRVAL þar sem bjarminn var, og fann skrínið. Þegar hún opnaði það, fannst henni gimsteinamir vera fegurri en nokkru sinni. Tan- jusjka þurfti ekki að fara með skrínið upp í húsið. Hún gat skemmt sér við það eins mikið og hún vildi, þarna niðri í kjall- aranum. Og svo gekk allt sinn vana gang. Móðirin hugsaði með sér: ,,En hvað ég hef falið það vel, nú veit enginn hvar það er.“ En þegar dóttirin var ein heima, gaf hún sér alltaf tíma til að skemmta sér við gjafir föður síns. Nastasia lét ættingjana aldrei fá tækifæri til að tala um sölu dýrgripanna. „Þegar þar að kemur, þá sel ég . . .“ Enda þótt hún ætti stundum erfitt, hélt hún þó öllu í horf- inu. Þannig liður nokkur ár, en svo fór þeim að vegna betur. Eldri bömin fóru að vinna sér dálítið inn sjálf. Tanjusjka hélt ekki heldur að sér höndum. Hún hafði lært að sauma í silki og með glerperlum. Svo vandvirk var hún, að beztu saumakonur hefðarfólksins hrósuðu henni og furðuðu sig á, hvaðan hún fengi mynztrin og saumgarnið. En nú kom dálítið fyrir. Kona kom í heimsókn til þeirra. Hún var lágvaxin og hömndsdökk, á líkum aldri og Nastasia. En augnaráð hennar var hvasst, og fiún gaut þannig augunum, að manni varð ekki um sel. Hún bar betlipoka úr skinni á bak- inu og hélt á stafpoka í hend- inni, eins og beiningakona. Hún sagði við Nastasiu: ,,Má ég hvíla mig hjá ykkur í nokkra daga, kona góð? Ég er orðin dauðþreytt í fótunum og ég á langa leið fyrir hönd- um.“ „Það er ekki svo að skilja, að við teljum það eftir, þó að þú tyllir þér við arininn,“ sagði Nastasia. „En það verður ekki löng hvíld, og við getum ekki látið þig fá neitt nesti með þér. Það er ekki stór munnbitinn á því heimili, þar sem engin er fyrirvinnan. Á morgnana — laukögn og sopi. Á kvöldin — sopi og laukögn. Það er eini munurinn. Ef þú ert ekki hrædd við að megrast, þá gerðu svo vel og reyndu að bjarga þér hjá okkur eins og bezt þú getur.“ Beiningakonan hafði þegar lagt frá sér stafprikið og pok- ann og farið að reima frá sér skóna. Nastasiu leizt ekki meira en svo á blikuna. En hún sagði ekkert. „Þarna er nú ekki beðið boð- anna, það veit sá sem allt veit!“ hugsaði hún með sér. „Hún er varla búin að heilsa, og þó er hún farin að taka af sér skóna og opna pokann.“ Og það var satt, konan opnaði pokann og benti Tanjusjku um leið að koma til sín. „Komdu hingað, stúlka mín, svo að ég geti sýnt þér handa- vinnuna mína. Ef þér lízt vel
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.