Úrval - 01.06.1953, Side 113

Úrval - 01.06.1953, Side 113
SKARTGRIPASKRÍNIÐ 111. Svo fór hún inn í malakítsalinn. Allir hneigðu sig djúpt fyrir henni. En Tanjusjka stóð graf- kyrr. „Bendið mér strax á þessa ókurteisu unnustu vors unga námueiganda!“ hrópaði keis- aradrottningin. Tanjusjka hlustaði á þetta án þess að láta sér bregða. „Jæja, svo að þú hefur fund- ið upp á þessu líka!“ sagði hún við námueigandann. „Ég bað þig um að sýna mér keisara- drottninguna, og þú lofaðir því! En nú svíkur þú mig ennþá einu sinni! Eg vil ekki sjá þig framar. Hérna eru steinarnir þínir!“ Að svo mæltu hallaði hún sér að malakítveggnum og var horfin. Það eina sem eftir var, voru glitrandi gimsteinarnir, sem virtust vera fastir við vegginn, þar sem höfuð og hendur stúlkunnar höfðu áður verið. Allir urðu auðvitað óttaslegn- ir, og keisaradrottningin féll í ómegin. Menn flýttu sér að lyfta henni upp af gólfinu. Þegar mesta uppnámið var um garð gengið, sagði einn af vin- um námueigandans við hann: „Flýttu þér að ná steinunum. Það er um að gera að láta hendur standa fram úr ermum. Svona hlutir eiga ekki við hér — við hirðina! Nú veit maður líka hvers virði þeir eru.“ Námueigandinn fór því að losa steinana. En jafnskjótt og hann snerti þá, breyttust þeir í dropa í höndum hans. Einn var gagnsær eins og tár, annar gul- ur, þriðji rauður sem blóð. Og hann náði engum. Þegar hon- um varð litið niður, sá hann hnapp liggja á gólfinu. Einsk- isverðan hlut úr flöskugleri. En í örvæntingu sinni tók hann jafnvel hnappinn upp. En ekki var hann fyrr búinn að því en. hnappurinn varð að stórum spegli, þar sem hann sá fagra, græneygða stúlku, sem bar klæði úr malakíti og var skreytt dýrustu gimsteinum. Hún hló og gretti sig framan í hann: „Einfaldi íkorninn þinn! Datt þér í hug að þú gætir náð í mig? Eins og þú gætir orðið keisarinn minn!“ Nú missti ungi námueigand- inn þá litlu vitglóru, sem hann hafði haft. En hann geymdi hnappinn. Hann starði bara á hann, og þar sá hann alltaf þá græneygðu, sem hló og stríddi honum. 1 örvæntingu sinni fór hann að drekka og drakk svo að náman var brátt seld á upp- boði. Lurkur var líka tíður gestur á kránum. Meðan hann var að drekka sig í hel, var hann alltaf með útsaumuðu myndina. Síðan veit enginn hvað um hana hefur orðið. Konu Lurks farnaðist ekki betur. Hvernig getur maður fengið peninga út á skuldar- viðurkenningu, þegar hver
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.