Úrval - 01.03.1970, Page 13
11
;f*---------------------**
smásögur
., um .
stormenm
**-------*--------------*Jfe
EDDIE CONSTANTINE hefur sagt
þessa sögu, og hann fullyrðir að hún
sé sönn. Hann kom eitt sinn í heim-
sókn til frænku sinnar, sem bjó
uppi í sveit. Hann varð undrandi
að sjá eitthvað stórt dýr liggja á
mottunni í forstofunni. og þegar
það stóð upp, urrandi og illúðlegt,
sagði Eddie: —- Heyrðu, frænka,
hvaða hundakyn er þetta?
— Það veit ég ekki, sagði frænk-
an, —• en bróðir minn sendi mér
þetta frá Afriku.
— Mér finnst það vera hræðilegt,
tautaði Eddie
— Þá hefðir þú átt að sjá dýrið,
áður en ég klippti af því makkann!
KNATTSPYRNUMAÐURINN
danski, Henry From, hefur sagt um
einn knattspyrnuleik: Þetta var
dásamlegasti eftirmiðdagur. Fyrir
framan mig stóðu Svíarnir í biðröð
til.að gera mark, en fyrir aftan mig
voru þúsundir sem hrópuðu að ég
væri asni.
GUSTAV V, SVÍAKONUNGUR, og
Tage Erlander, fyrrv. forsætisráð-
herra ræddu trúmál. Erlander sagði
í trúnaði við kónginn:
— Yðar hátign, þér skiljið, . . .
ég trúi ekki á Guð.
— Kæri Erland.er, svaraði kon-
ungurinn, — ætli það geri nokkuð.
Sennilega trúir Guð heldur ekki á
yður.
VIÐ OG VIÐ KOMA upp þær sögu-
sagnir að Grace furstaynja í Mona-
co hyggist snúa sér að kvikmynd-
um aftur. Sjálf segir hún ekkert,
en skriftafaðir hennar, hinn þekkti
faðir Tucker, svaraði spurningunni
um þetta þannig:
— Aftur í kvikmyndir? En hvers
vegna þá? Furstaynjan fær aldrei
eins gott hlutverk og það, sem hún
leikur nú.
SKÁLDIÐ OI.AF BULL var ný-
giftur og hitti vin sinn á götunni.
— En hvers vegna varstu að
gifta þig? spurði vinurinn.
— É'g skal segja þér, ég var orð-
inn svo þreyttur á að hanga á veit-
ingastöðunum.
— Og nú?
Skáldið hló. —- Nú er það aftur
orðið gaman.
ÞAÐ VAR VERIÐ að tala um kon-
ur og að fæstar þeirra hefðu þann
eiginleika að geta varðveitt leynd-
armál. Þá greip franski leikarinn
Pierre Brasseur fram í og sagði vin-
gjarnlega:
— Það er nú ekki satt. Konur
geta vel þagað yfir leyndarmálum,
þ. e. a. s. ef þær vita ekki, að það
er leyndarmál.
EITT AF ÞVÍ, sem fundið hefur
verjð upp í Las Vegas, eru sýning-
ar„hundar“. Margita Jung á hunda-
tízkuverzlun, og hún á einnig